Eiga ekki mennirnir að skera upp

Nú hefur einhver málfræðingurinn troðið því inn í kollinn á forstjóra Landspítalans að það sé rangt að segja að menn skeri upp heldur eigi að skera niður. Þegar forstjórinn biður svo fólk í sakleysi sínu að leiðrétta þessa málvillu og Jón Jónsson kemur inn með botnlagabólgu þá er steinhætt við að skera hann upp, starfsemin skorin niður, Jón sendur heim.

Ég ætla að vona að forstjórinn fari ekki inn á deildir og biðji menn að rétta af hallann. Sé fyrir mér hvar doktor Saxi fer fyrir liðinu með hallamál í hendinni.


mbl.is Landspítalinn sker meira niður
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kemst ekki í buxurnar hennar Jóhönnu

Guðbjartur Hannesson segist ekki vera að máta formannsbuxurnar. Hann er klár í kollinum og hefur áttað sig á því að hann og Jóhanna nota ekki sama númer, þótt stillinn sé kannski svipaður. Ekki sé ég heldur Össur fyrir mér með virðulegt skegg og í buxum, sem ekki nást upp fyrir þjóhnappa. Það verður að finna einhvern lítinn og nettan til að máta.
mbl.is Ekki á formannsbuxunum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Nupo týndur?

Í gamla daga söng maður undarlegan söng um Tre små kinesere på Höjbroplads, som sad og spillede på kontrabas.
Auðvitað er ekkert vitlausara að sitja á Grímsstöðum og spila á kontrabassa heldur en þvælast um sandinn og spila golf.
Það sést nú eina ferðina enn hversu arfavitlaust það er að ræða um að byggja stórkostlegt hótel þarna í auðninni. Menn eru enn að festa sig og spurning hvort vesalings Nupo hefur villst á níundu holu og lent hjá Dettifossi, hver veit.
mbl.is Manns leitað við Dettifoss
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Einelti út um allan Garð

Eins og menn kannski muna þá urðu miklar umræður um einelti í Gerðaskóla í Garðinum. Þegar menn fóru að blogga um málið þá komu þar athugasemdir frá heimamönnum, sem sögðu allt í stakasta lagi. Það er auðvitað verst þegar menn vilja ekki takast á við vandann.

En börnin læra það sem fyrir þeim er haft og því er ég ekkert undrandi þótt bæjarfulltrúi þar hafi fengið hótanir. Það tekur á taugarnar að búa í þessum vindrassi en það er sorglegt ef þetta pláss verður þekkt fyrir eineltismál og hótanir


mbl.is Íbúar í Garði sýni stillingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Evrópusamband-makríll og Hvalfjarðargöng

Ég er löngu hættur að skilja. Stundum held ég að við séum ekkert á leið í þetta Evrópusamband, sem hótar okkur öllu illu, ef við tökum upp á því að veiða fisk sem álpast í átt að landinu. Svo næsta dag virðumst við allt í einu vera komin í þetta sama samband og Spölur hækkar vegagjaldið um heilan helling á þeim, sem eru stöðugt á ferðinni vegna einhverra reglna hjá þessu sama sambandi. Austur á landi er svo slatti af fólki að þýða reglugerðir Evrópusambandsins á íslensku. Skyldu ekki fleiri en ég vera á báðum áttum?
mbl.is ESB hótar viðskiptabanni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að ösku skaltu aftur verða

Nú er illt í efni, þegar ekki eru lengur til peningar til að taka grafir. Það er því best að fara að hugsa sinn gang. Ekki vill maður lenda í því að vera í langri biðröð eftir því að komast í jörðina. Nóg er nú að vera kannski í langri biðröð eftir aðgerð á spítala.

En fróðlegt væri að vita hvort þeim fer ekki mjög fjölgandi, sem hafa tekið þá ákvörðun að vilja bara verða að ösku. Þessa ákvörðun hef ég tekið fyrir löngu.


mbl.is Hafa ekki lengur peninga til að taka grafir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er orðið Samræða til?

Hér segir að Ólafur Ragnar sé að hefja kosningabaráttuna og fundaherferðin beri nafnið: Samræða um allt land. Ég hef alltaf haldið að þetta orð væri bara til í fleirtölu og héti samræður.Hvað um það þetta minnir mig svolítið á það þegar merkur yfirmaður hjá Reykjavíkurborg ætlaði að hvetja undirmenn sína til að hafa samráð um sem flesta hluti, en það varð meinleg misritun. Þar sagði hún: Þið verðið að muna að hafa samræði við undirmenn.

Væntanlega vonar hún að sem flestir hafi gleymt þessu bréfi. Mér finnst að herra Ólafur hefði nú getað fundið eitthvert aðeins betra heiti.


mbl.is „Ég er að byrja kosningabaráttuna“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvað er einn garður á milli vina

Eftir garðinum mínum liggur líka þessi fíni skurður með ljósleiðara. Þeir hjá Gagnaveitunni eru í bölv... vandræðum að koma ljósleiðara í gömlu hverfin og reyna allt hvað þeir geta að lauma strengnum í gegnum garða til þess að þurfa ekki að brjóta allt upp. Það er til máltæki sem er svona: Það kostar klof að ríða röftum og það varð til í sveitinni, þegar krakkarnir voru að leika sér klofvega á sperrum í hlöðunni. Hér í Grafarvogi má segja að það kosti garða að fá ljósleiðara. Sá er þó munurinn að ég var spurður, en er jafnframt dauðhræddur um að ég gleymi hvar strengurinn liggur og taki upp á því að gróðursetja nýju ávaxtatrén þar. Vonandi eigum við íbúarnir þó eftir að njóta þess vel í framtíðinni að hafa þessa ljósleiðara ekki síst þegar helv.. aspirnar eru farnar að trufla örbylgjusendingar hér og þar í hverfinu.
mbl.is Ókunnugir menn grófu í garðinum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Konur eru konum verstar - Áfram Þóra

Jæja, Þá er bara að einbeita sér að þeim eina frambjóðanda, sem getur ógnað veldi Ólafs Ragnars. Einn bloggari kemst að því að hún komist ekki með tærnar þar sem hann hafi hælana. Reikna með að hún eigi við að þegar Ólafur er úti að hlaupa, þá nái hún honum ekki af því að hún er ófrísk. Kæmi mér svosem ekkert á óvart að einhver kynsystir hennar finni henni það til foráttu og jafnvel að hún eigi fleiri börn. Konur hafa oft verið konum verstar, hvað sem þær hörðustu í þeirra hópi segja
mbl.is Þóra ætlar í framboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

2 óðir flugstjórar

Ég held svei mér þá að þetta sé önnur fréttin á stuttum tíma um það að flugstjóri verði vitlaus í háloftunum og gott ef það dó ekki einn við stjórnvölinn. Það er þokkalegt ef maður verður öryggisins vegna að binda áhöfnina í upphafi flugs, svo maður komist örugglega á leiðarenda. Sé ekki betur en Heimsferðir og Úrval Útsýn verði að bjóða farþegum skyndinámskeið við stjórnun Boeing svo þeir geti tekið yfir.

Annars er þetta ekkert gamanmál. Getur verið að Al-Qaeda séu farnir að ná flugstjórum á sitt vald og heilaþvo þá. Spyr sá sem ekki veit.


mbl.is Farþegar yfirbuguðu flugstjóra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband