Það er allt á floti allsstaðar

Já, nú er því spáð að hitinn hér á höfuðborgarsvæðinu hoppi upp um heil tólf stig. Það er þokkaleg breyting eða hitt þó heldur. Að undanförnu hefur það nefnilega komið illilega í ljós að sum hús eru byggð á mýrarsvæðum og sumar götur bera nafn með rentu. Þannig er þetta með fenin, þar sem niðurföll taka ekki við og kjallarar fyllast af vatni. Margar sögur berast víðar að þar sem vatn kemur jafnvel upp um gólfið í kjallara gamalgróinna hverfa þar sem áður var mýri. Ef ég man rétt þá er ákveðið svæði í Reykjavík kallað Norðurmýri. Kannski ætti maður að hafa það vel í huga við íbúðakaup að sleppa mýra- og fenjasvæðum.

En upp í hugann kom gamall texti:

Það er allt á floti allsstaðar
og ekkert nema sjór, en segðu mér:
Hvað get ég annað en hugsað til þín,
sem heima bíður mín.


mbl.is Allt að 11 stiga hiti um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Senda í CCI | Hafðu samband