Við heyrum svo oft um hryðjuverkamenn sem eru Múslimar

Sveinbjörg kann að hlusta á fólkið. Það er nefnilega svo að ótrúlega margir vilja enga byggingu á þessum stað það sem maður kemur eiginlega blíðlega inn í Borgina með grænar grundir til hægri. Hvergi í Reykjavík blasir eins vel við ökumönnum að það séu líka til yndisleg græn svæði.

Eflaust spilar inn í að undanfarin ár höfum við heyrt gífurlega mikið um öfgamenn, sem eru Múhameðstrúar og nú síðast í Nígeríu. Nú og svo heyrðum við ekki svo lítið um Al Kaeda samtökin.

Þeir sem vilja dæma okkur ofstækismenn vegna þess að við erum í vafa um Moskuna, þeir hafa hátt og skilja ekki slíkan öfgakenndan hugsunarhátt. svo taka þeir upp tólið og spyrja ráðamenn Borgarinnar hvort það sé forsvaranlegt að vera að setja upp heimili fyrir einhverfa þarna í götunni.

 


mbl.is Framsókn með mann
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Nú snýst þetta um skipulagsmál og lóðaúthlutanir ?

Samfylkingin reyndi að telja mér trú um allt annað !

Guðmundur Ásgeirsson, 29.5.2014 kl. 12:24

2 identicon

Sennilega eru grimmdarverk Víkinganna til forna ein meginröksemd Framsóknar að meina Ásatrúarsöfnuðinum lóð.

Hilmar (IP-tala skráð) 29.5.2014 kl. 17:17

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband