Saklausir eru þeir hundeltir og drepnir

Kannski finnst einhverjum að ég sé að bera í bakkafullan lækinn svo oft hef ég minnst á miskunnarleysi margra Islamista. Þarna hundelta þeir kristna menn. Fyrst eru þeir hraktir upp á fjall þar sem ekkert vatn og engan mat er að fá og svo þegar þeir reyna að flýja dauðann, sem bíður þeirra þar þá lenda sumir beint í flasinu á ILLVILJANUM í sinni verstu mynd. Þeir eru teknir höndum og drepnir miskunnarlaust. Enginn greinarmunur gerður á börnum og fullorðnum.

Þeir sem halda að svona menn verði blíðir og góðir við það eitt að setjast að á Vesturlöndum þeir eru slegnir blindu, en vonandi fá þeir sýn fyrr en síðar. Ég hef þá trú á að flestir þessarra grimmdarseggja geri hreinlega grín að því hvað við erum vitlaus.


mbl.is „Nú deyjum við. Vertu sæll.“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Oggulítil, tja eigum við að segja leiðrétting? Þarna er verið að tala um Jashíta, sem eru afskaplega gamall sértrúarflokkur, miklu eldri en bæði kristni og islam.  Fólk getur ekki gengið í söfnuðinn, það verður að fæðast inn í hann, svo dæmi sé tekið.

E (IP-tala skráð) 13.8.2014 kl. 11:07

2 identicon

Meginmálið er hatur islamista á öllu fólki og það er rétt hjá Þjóðarsálinni, að þessir glæpamenn koma til vesturlanda, sem grátandi flóttamenn og lifa í vellistingum á kostnað okkar heimskingjanna á vesturlöndum.

Lygasögurnar eru í hundruðum.

Þeir stunda þetta nú þegar og vitað er um hundriðir jhiadista, sem farið hafa til Sýrlands til að berjast með hinum illa og lifa góðu lífi á félagsbótum á vesturlöndum og hlægja að heimsku okkar.

Því miður.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 13.8.2014 kl. 12:51

3 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Ekki svo að það skipti neinu máli en kristnir eru ekki tilgreindir í fréttinni. En varðandi síðustu athugasemdina: Ef Íslamistar hata allt fólk þá undanskilja þeir ekki sjálfa sig, er það. Enda eru meginhlutinn Múhameðstrúar sem hafa orðið fyrir barðinu á Isis. Bara ekki Réttur Múhameð að þeirra mati. En þá má segja að Kristnir (Kaþólikkar) á N-Írlandi hafi hatað allt fólk-líka sitt eigið- þar sem þeir myrtu fjöldann af öðru Kristnu fólki ( mótmælendum) sem trúðu þá væntanlega ekki á þann eina og sanna Krist. ER nú ekki komið nóg af þessu endemes rugli Valdimar?

Jósef Smári Ásmundsson, 13.8.2014 kl. 15:23

4 identicon

Jósef - ertu að rengja það, að þetta fólk kemur til vesturlanda undir fölsku yfirskini og grætur sig inn á velferðarkefið, sem hundeltir flóttamenn? Í reynd eru þeir sjálfir hryðjuverkamennirnir, sem vestræn stjórnvöld eru að átta sig á núna.

Það er rétt að það voru átök í N-Írlandi, en þau voru pólitísk og snérust um ítök breta í landinu eða ekki.

Ég veit að það fer fyrir brjóstið á þér, að ég hef ýmigust á múslimum og ég er löngu hættur að hlusta á smjaðurkjftæði og lygar þeirra í fjölmiðlum.

Sænskir fjölmiðlar eru alltaf með smjaðrandi múslima á skjánum, sem tala um misskilning á þessu og hinu, þegar eitthvað neikvætt á sér stað í samfélaginu, því það eru nánast undantekningarlaust alltaf múslimarnir sem eru vandamálið.

Sannleikurinn er oft hvað sárastur.

Valdimar Jóhannsson (IP-tala skráð) 13.8.2014 kl. 16:07

5 Smámynd: Jósef Smári Ásmundsson

Já ég er að rengja það að " ÞETTA" fólk komi til vesturlanda undir fölsku yfirskini. Ég veit að fólk sem er múslimskar trúar er mismunandi eins og allt annað fólk og trúin kemur því máli ekkert við. Þetta er einungis fordómar og hatur hjá þér í garð þessa fólks og það er rétt hjá þér að það fer fyrir brjóstið á mér.

Jósef Smári Ásmundsson, 13.8.2014 kl. 18:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband