Nei þetta er ekki ebóla - að vísu alveg eins einkenni en samt
5.8.2014 | 08:57
Ég á oft í óttalegu basli með að átta mig á hvernig sumir snillingar hugsa. Stundum er eins og þeir bara taki sína eigin ákvörðun og hangi á henni hvað sem tautar og raular.
Hér er semsagt greint frá veikum manni í New York. Einkennin eru nauðalík ebólu og hann ferðaðist nýlega til lands í Vestur-Afríku.
Samt segja læknar ósennilegt að hann sé smitaður af ebólu.
Ætli þetta heiti ekki að lifa í heimi óskhyggju.
Það væri þá mjög fróðlegt að spyrja þá hvaða önnur veikindi sýna þessi sömu einkenni og hvað er þá að manninum.
Hér vitna ég beint í blaðafrétt
Grunur lék á því að maður sem lagður var inn á sjúkrahús í New York í gær væri smitaður af ebóla-veirunni. Að sögn lækna er þó talið ólíklegt að hann sé smitaður, þó hann hafi vissulega þjáðst af einkennum sem svipar til smits, auk þess sem hann ferðaðist nýlega til lands í Vestur-Afríku.
Grunur um ebólusmit í New York | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Why did the U.S. Government patent the Ebola virus in 2009?
http://www.intellihub.com/u-s-government-patent-ebola-virus-2009/
Helgi Armannsson (IP-tala skráð) 5.8.2014 kl. 09:58
Hár hiti og niðurgangur eru einkenni sem geta átt við marga sjúkdóma aðra en ebola, jafnvel hjá fólki sem hefur ferðaðist nýlega til lands í Vestur-Afríku. Hefði maðurinn ferðast til einhvers annars lands hefði þetta verið afgreitt sem ferðamannaskyta.
Vagn (IP-tala skráð) 5.8.2014 kl. 11:42
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.