Hér er rapp fyrir Erp og Móra

Eiður og Móri
alltaf að rappa,
allir virðast
þekkja þá kappa.
Þeirra á milli
þó er víst brestur.
Rífast um hver
er rappari bestur.
Ýmsa dreymir
um það að sætta.
En eftir þetta
eflaust þeir hætta.
Erpur var sko
ansi hreint hissa.
Elskan mín Móri,
er þetta byssa.
Hættu nú kappinn
hérna að skoppa
Víst skal nú verjast
vopnið er moppa.
Friðinn við slítum
ferlega í sundur,
mér finnst þetta vera
forljótur hundur.
Af hverju reiðast
og illindi sýna,
ég áfram skal bjóða
sáttahönd mína.
mbl.is Allt sprakk í loft upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

 ha e fjör.

Helga Kristjánsdóttir, 16.2.2010 kl. 13:50

2 Smámynd: ÞJÓÐARSÁLIN

Það er alltaf fjör, ef ég hef eitthvað til að yrkja um. 

ÞJÓÐARSÁLIN, 16.2.2010 kl. 14:50

3 Smámynd: Þráinn Jökull Elísson

Þetta er snilld.

Þráinn Jökull Elísson, 16.2.2010 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband