Færsluflokkur: Lífstíll

Fátæk þjóð í vanda!

Fyrir hrun þá fannst manni fólk haga sér eins og vitleysingar í peningamálum. Um þjóðvegi landsins æddu landcruiserar með ótrúlega stór hjólhýsi í eftirdragi helgi eftir helgi. Maður spurði sjálfan sig hvaðan fólk hefði alla þessa peninga og síðar kom auðvitað í ljós að það var engin inneign fyrir þessu öllu.

Nú er öldin önnur. Þjóðin er fátæk og í vanda og sárt til þess að hugsa hversu margir sitja heima og treysta sér ekki til að kaupa miða á ódýra tónleika eins og hjá Timberlake. En svona er þetta nú einu sinni. Það er þó gott að þjóðin sýnir nú aðhald og skynsemi í peningamálum.
mbl.is Seldist upp á Justin á 12 mínútum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vinir vina sinna!

Það er ómetanlegt að eiga góða vini. Það er skemmtileg tilviljun að bæði í gær og dag birtist frétt af konum, sem fara úr landi til að styðja aðra. Það hlýtur að vera merkileg lífsreynsla fyrir mann, sem hefur setið lengi í fangelsi að fá heimsókn frá mæðgum, sem hafa skrifast á við hann í nokkur ár. 

Sama á auðvitað við um Pistorius, sem nú fær endurgoldinn styrk, sem hann sýndi ungum íslenskum manni. Ég leyfi mér að óska þessum konum alls hins besta. Það er nauðsynlegt hverjum manni að eiga vini sem styðja þá í blíðu og stríðu. 


mbl.is Ebba styður Pistorius í réttarsal
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hélt kannski að þessu mundi linna eitt augnablik

Það er bráðnauðsynlegt að þessum vælugangi í garð karla verði hætt. Ef ekki þá munu allar stúlkur landsins verða skíthræddar við alla karla og halda að þeir séu sífellt að reyna að klekkja á konum.

Stundum liggur ónefndum konum svo mikið á að sanna þetta að þær fara bara sjálfar að blogga undir dulnefni til að sýna hversu hroðalegir karlar eru í raun. 

Þessi fyrirsögn er dæmigerð.  Þarna eru konur með dagskrá þar sem konur eru í aðalhlutverki. Hverning yrði fyrirsögnin ef karlar væru með dagskrá þar sem það væri auglýst að aðaláherslan væru á verk karla. Þeir yrðu fordæmdir í einum grænum og fyrirsögnin gæti aldrei orðið:Kvennahúmor sem beinist að körlum


mbl.is „Karlahúmor sem beinist að konum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvers eiga karlar að gjalda?

Einu sinni enn berast af því fréttir að kona hafi rekið karl úr starfi án nokkurrar skýringar. Í þessum tilfellum reyna karlarnir að ná rétti sínum, en allir hugsa að viðkomandi hljóti að hafa gert eitthvað af sér. Þið hljótið að muna eftir svipuðum fréttum frá undanförnum árum og í öllum tilfellum voru þeir sem sendu bréfin kvenkyns. Það er algjör lágmarkskrafa að vanda vel til bréfanna og skilgreina út í æsar hver orsökin er. Við karlar getum ekki lifað við það að fólk sé að ímynda sér allskyns hluti, sem eiga ekki við rök að styðjast. Konur geta ekki skýlt sér á bak við: Af því bara.  

 

P.s. Sé hér á bloggi Arnþórs Helgasonar að við erum innilega sammála. 


Konur sem hata konur

Hér gefst kærkomið tækifæri til að benda á það einu sinni enn að skæðasta vopn kvenna er andstyggilegt orðalag í garð annarra kvenna. Þetta er meðfæddur andskoti og engu virðist skipta hver stúlkan er. Ef þær sjá til dæmis aðra konu gefa kærasta sínum auga þá getur maður verið 100% viss um að eftir augnablik verði því laumað að kærastanum hvílík drusla hin konan sé og gjarnan bent á líkamspart, sem sé nú ekki til að hrópa húrra fyrir.

Það eru nefnilega ekki við karlarnir, sem erum að finna að vaxtarlagi og klæðnaði kvenna, það eru hinar konurnar, sem það gera. Þetta er einfaldlega aðferð, sem allar konur nota til að hafa sinn útvalda í friði og engin kona getur hamið þetta eðli. Feministi eða ekki feministi. Eitt sinn kona, ávallt kona.
mbl.is „Ég skammast mín ofan í tær“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekkert tannlæknadrasl inn í skólana!

Margir vita að hér áður var vart finnanlegur grunnskóli í Reykjavík þar sem ekki var tannlæknastóll. Þar var athuguð tannheilsa allra krakkanna og þeir sem það kusu gátu fengið ókeypis viðgerð. Þetta var auðvitað einum of auðvelt fyrir foreldra, svo fyrir nokkrum árum var lokað fyrir þessa þjónustu.

Nú eru tannlæknar aftur að reyna að laumast bakdyramegin inn í skólana með tannbursta og aðrar stórhættulegar gjafir.  Það er gott til þess að vita að þeir hjá Reykjavíkurborg eru vakandi við að vernda börin geng stórhættulegu fólki eins og tannlæknum, sem hafa fleiri andvökunætur barna á samviskunni, en nokkur önnur stétt.


mbl.is Mega ekki gefa tannbursta í skólum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er sorgleg vísa frá sjónarhóli hrúts!

Þetta með pungana hlýtur að vera viðkvæmt mál frá sjónarhóli hrútsins. Og ekki batnar það eftir að önnur skyld vara kom líka á markaðinn súrsuð.

Hvað um það, í tilefni þorrans orti undirritaður.

Á leið í vinnuna hitti ég hrút,
sem horfði dapur í augun á mér,
sagðist hafa hrokkið í kút
það hefð´einhver étið punginn á sér. 

Þessi er myndarlegur


mbl.is Unga fólkið sækir í punga
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, ekki flytja úr bænum!

Elsku karlinn minn!

Eins og allir vita þá er mjög langt frá því að þú sért neikvæðasti maður í bænum. Til dæmis veit ég um menn, sem sömdu þorrablótsannál Keflavíkur. Þar var sko ekki verið að fara fínt í hlutina og ef höfundar hans eru jákvæðir þá skal ég hundur heita.
Þess vegna bið ég þig að hugsa málið upp á nýtt. Ef þið þessir jákvæðu menn farið að flytja héðan hver um annan þveran þá endar það auðvitað með því að Reykjanesbær verður landsfrægur fyrir neikvæðni. Voru þessir menn ekki bara komnir í glas eða mismæltu sig og voru að meina einhvern allt annan. 


mbl.is Ósáttur við þorraannál og flytur úr bænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Besta landsliðið vinnur Dani!

Það er alveg vonlaust að láta Dani vinna allt núna, svona rétt áður en Guðmundur tekur við þjálfun þeirra. Ef maður tekur við liði, sem er á toppnum þá er engin leið upp, en tiltölulega auðveld leið niður. Nú verðum við Íslendingar að standa með Guðmundi og láta hinn sigursæla danska þjálfara, Ulrik Wilbek,  finna hvar Davíð keypti ölið. 

Ólafur segist stoltur af því að keppa með besta landsliði heims og því er sjálfsagt að hafa hann sem mest í leiknum. Það er nú líka svolítið gaman að nýr Ólafur skíni nú skært í liðinu.

Áfram Ísland. 

Hér er kappinn


mbl.is Stefnan sett á sigur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Geta staðist allt nema freistingar!

Þetta nær auðvitað engri átt. Ráðherrar og forsetar úti um allan heim mega ekki lengur renna hýru auga til kvenna í veislum og þá er einhver búinn að hvísla þessu á netið. Líklegasti aðilin er makinn, sem í gamla daga hefði beðið heima með kökukeflið, en finnur nú verkfæri sem vegur miklu þyngra.

Twitter, facebook og fleiri valda stöðugt meiri vandræðum. Þarna á Indlandi er semsagt hver einasti maður búinn að sjá það á twitter að karlinn hafi verið ótrúr og svo deyr eiginkonan á hóteli og skilur karlinn eftir með margfalda skömm.
Gamla máltækið er í fullu gildi: Ég get staðist allt nema freistingar.


mbl.is Ráðherrafrú fannst látin á hóteli
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband