Færsluflokkur: Lífstíll

Hvaða mánaðardag er 17. júní í ár?

Sagan hér um 118 er anzi skemmtileg. Stundum gleymir maður að hugsa fyrst, en spyrja svo. Ég man eftir því í æsku að mæt kona sagði: Hvaða mánaðardag verður aðfangadagur í ár. Nú svo má ekki gleyma hinum hafnfirska kynni sem sagði: Góðir Hafnfirðingar, í dag er 17. júní um land allt. En það er hreint ekki sjaldgæft að menn rugli saman orðunum vikudagur og mánaðardagur og því vert að benda á að þannig hittist á að þjóðhátíðardagurinn verður þann sautjánda í ár.Wild_Ass_of_Sokotra
mbl.is „Hvað er þá númerið hjá 118?“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Við megum ganga um land

Eftir því sem ég best veit þá skiptir ekki öllu máli hver á landið. Íslensk lög veita okkur ákveðið frelsi til að taka okkur göngutúr víðast hvar. Meira að segja á ekki að vera hægt að banna okkur að tína upp í okkur ber á þeirri gönguför.

Svona lög eru nauðsynleg, því annars gæti maður orðið fangi í eigin landi. Ef slík lög væru ekki fyrir hendi þá gætu þeir í Mosfellsbæ og Kópavogi heimtað skatt af okkur Reykvíkingum um leið og við færum inn á þeirra land svo dæmi sé tekið. Satt að segja er þetta uppátæki þeirra fyrir austan ekkert gáfulegra.


mbl.is Hverirnir á landi í eigu ríkisins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kannski 2,9%

Þá er nú ekki víst að framhaldsskólanemar leggist á koddann alveg strax. Sennilega þætti þeim mörgum í lagi að fá svona vikufrí, en eftir það hellist yfir menn þetta undarlega tóm, þegar maður hefur ekki félaga sína á næstu grösum og dagarnir verða langir og leiðinlegir. Í Hávamálum er sagt að maður sé manns gaman og það á svo sannarlega við í skólanum, þótt krakkarnir séu stundum að fjasa um leiðinlega kennara, fúla dönsku og annað slíkt. 

Þegar fólk lítur til baka þá voru einmitt árin í framhaldsskólanum bestu ár ævinnar.


mbl.is Verkfall hefst á morgun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar goshvernum var lokað!

Það eru sennilega ekkert margir lengur, sem vita að einhverjum skemmtilegasta goshver landsins var lokað fyrir löngu síðan. Það væri gaman, ef einhver gæti upplýst mig um það hvort hann gýs enn í dag. Fyrir margt löngu, þegar ég var í námi sem leiðsögumaður þá komum við í Hveragerði og bílstjórinn laumaðist með mig að húsagarði. Þar losaði hann um heljarmikið járnlok og eftir smástund kom þetta líka fallega gos. Hann sagði mér að húsráðendur hefðu bæði verið orðnir leiðir á því að hafa fólk við húsið alla daga og einnig var víst glerið í húsinu ekki fallegt. Ef þessi hver er nú enn virkur í húsagarði í Hveragerði þá vildi ég gjarnan fá að kaupa húsið og selja inn.
mbl.is Heimilt að loka Geysissvæðinu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Svefngenglar með síma!

Hvar sem maður kemur ræða kennarar og aðrir uppalendur um allt þetta snjalldót og vandann, sem það skapar. Þegar viðkomandi uppalandi hefur kíkt í símann sinn þá segir hann manni að þessi vandi sé svo stórkostlegur hjá börnum og unglingum að eitthvað þurfi að gera strax. Að svo mæltu kíkir uppalandinn á símann sinn smástund. 

Staðreyndin er sú eins og allir vita að fólk er oft ráfandi eins og svefngenglar starandi á upplýstan skjá algjörlega út úr heiminum.  Það er stórkostlegt að einhver hafi nú riðið á vaðið og hreinlega bannað þetta dót í keppnisferðum. Mikið væri gott ef skólar gripu tækfærið og segðu: Hingað og ekki lengra.


mbl.is Banna alla síma í keppnisferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er ekki frjálst að labba um eigið land?

Ég hélt í sakleysi mínu að til væru lög, sem heimiluðu fólki að labba um landið. Ég minnist þess meira að segja að hafa heyrt að landeigendur ættu ekki rétt á að hindra fólk í að tína upp í sig ber á þeirra landareign. Ég þekki lögin reyndar ekki nógu vel, en kannski er það svo að menn geti bara girt af ákveðin svæði og selt inn á þau. En Ragnheiður Elín hlýtur að láta skoða þetta vel og vandlega.
mbl.is „Kvótakóngar íslenskrar ferðaþjónustu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þingvellir fyrir ALVÖRU veiðimenn

Flestir sem eru að  byrja veiðar láta sér nægja flotholt og maðk. Þeir eru einnig ófáir pabbarnir, sem hafa tekið börnin sín með til Þingvalla og leyft þeim að hafa sína stöng í rólegheitum með flotholti á meðan þeir hafa notað sínar aðferðir.

Það er merkilegt að þetta geti ekki verið óbreytt, en nú mun ákveðið að enginn megi veiða í Þingvallavatni í maímánuði nema á flugu. Til þess að fá fólk til að gleypa við þessu var ákveðið að nú megi þessir ALVÖRU veiðimenn byrja þann 20. apríl.
Enn spyr ég: Fyrir hverja eru Þingvellir?


Banna böll í framhaldsskólum

Það eru margir stjórnendur framhaldsskóla orðnir hundleiðir á böllum. Einn sagði reyndar að það væri langbest að vera algjörlega laus við þennan ófögnuð bæði innan skóla og utan. Hann sagði að þessu fylgdi ótrúleg ónæði, ölvun og vesen.  Annar sagði að um leið og talað væri um böll þá myndaðist einhver óskilgreindur þrýstingur og væri hreinlega ekki kennsluhæft þann daginn.

Varðstjóri komst þannig að orði að fólk væri slegið blindu ef það talaði um skólaböll og héldi að slíkt fyrirbæri væri eitthvað frábrugðið venjulegum böllum. Eina ráðið virðist því að banna böll í framhaldsskólum. 


mbl.is „Allir eru sótölvaðir á böllum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sofðu unga ástin mín !

Ef menn hanga inni og komast hvergi, þá er hér lítið ljóð við lagið: Sofðu unga ástin mín. Hægt að raula þetta á meðan verstu hviðurnar ganga yfir
 
Nú er úti veður vott,
verst á Kjalarnesi.
Við Hafnarfjallið hreint ei gott
hjólhýsi þar fauk á brott
og upp til himins hurfu Brúnn og Blesi.

Út á mel og upp við fjall
ægilegar hviður.
Í Stykkishómi stærðar kall
stóð við gamlan fiskihjall
Þeir koma eflaust aldrei aftur niður.

Alveg fékk ég upp í kok
aldrei sól og blíða?
Áðan heyrði um fjárhúsfok
svo fuku hænur upp á Ok.
Hollast mun því heimleiðis að skríða.


mbl.is Spá 40-50 metrum á sekúndu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leikhús lögreglunnar!

Vegfarandi: „Ég er hérna á veginum við Hveragerði og það er hlið fyrir veginum“

Lögregla: „Ertu ekki að meina yfir veginn?"

Vegfarandi: „Hvaða tittlingaskítur er þetta?"

Lögregla: „Er þetta hlið ekki frekar fyrir þér en fyrir veginum. Hann ætlar mér vitanlega ekki að fara neitt.

Vegfarandi: „Ég er búinn að kaupa miða í óperuna og nú get ég ekki notað þá.“

Lögregla: „Ertu að meina óperuna Ragnheiði í Eldborgarsalnum - tvo miða?.“

Vegfarandi: „Já, og konan mín grætur hér við hliðina á mér“

Lögregla: „Já, það gráta nú víst margir á þessari sýningu. Manstu nokkuð númer hvað sætin ykkar eru?“

Vegfarandi: „Já á 6. bekk númer 26 og 27

Lögregla: „Heyrðu, ég má því miður ekki vera að ræða við þig lengur, en ég er einmitt að loka hér í Þrengslunum líka og þarf að drífa mig í bæinn. Þú ferð bara heim og horfir á góða mynd."


mbl.is „Alltaf sama ruglið í löggunum“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband