Fann ekki Bankasýsluna
25.10.2011 | 17:37
Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að taka ekki að mér starf forstjóra Bankasýslunnar. Satt að segja kemur þessi ákvörðun mín ekki til af góðu. Ég kunni ekki við að opinbera vanþekkingu mína, en ég hreinlega fann ekki Bankasýsluna. Það næsta sem ég komst var Barðastrandasýsla og hún er of langt í burtu. Hvar í ósköpunum getur hún verið?
Páll tekur ekki starfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Hahahahaha
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 25.10.2011 kl. 17:41
Lítill fugl hvíslaði að mér að umrædd sýsla væri u.þ.b vestan Elliðaár og norðan Skerjafjarðar. Fuglinn bætti við að þegar mikinn spillingaróþef leggi fyrir vit þá væri umrædd sýsla á næstu grösum.
Umrenningur, 25.10.2011 kl. 20:30
Sigurður Haraldsson, 25.10.2011 kl. 23:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.