Súrmjólk í hádeginu cheerios á kvöldin
27.3.2014 | 22:30
Miðað við þessa frétt hér þá hefur mataræði landans breyst mjög til hins verra á síðari árum. Það muna allir eftir ljóðinu um súrmjólk sem var á borðum í hádeginu ásamt cheeriosi á kvöldin.
Samkvæmt þessari frétt hér hefur allt farið mjög á verri veg og vissar fjölskyldur éta hamborgara að kveldi og klára afganginn að morgni. Eins gott að til eru menn, sem fylgjast með og berjast á móti svona háttalagi. Nú fæ ég loks skilið af hverju þjóðin hefur breyst eins og brýrnar frá því að vera einbreið yfir í tvíbreiða.
Hélt dagbók um nemanda | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Mér finnst samt spurning hvort fjölskyldan er ekki bara nýtin? Í gærkvöldi fórum við hjónin á veitingastað og pizzan var aðeins of stór. Áður en ég fór í vinnuna greip ég mér því pizzusneið í morgunmat, því morgunkornið skemmist ekki en pizzan væri orðin ónýt í kvöld. Maður hendir ekki mat - sérstaklega góðu gúmmelaði eins og hamborgara eða pizzu (-:
Bragi (IP-tala skráð) 28.3.2014 kl. 07:56
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.