Auglýst eftir Hönnu Birnu!
11.5.2014 | 18:36
Ég auglýsi hérmeð eftir konu sem heitir Hanna Birna. Um nokkurt skeið var hún borgarstjóri í Reykjavík. Hún var mjög skelegg í framkomu og manni var ljóst að hún mundi grípa inní hverskonar vandamál og leysa þau almenningi til heilla. Ég studdi hana einmitt í prófkjöri, en hef ekkert heyrt frá henni lengi. Svo er einhver nafna hennar á þingi, en sú virðist hikandi og er ekki nærri því eins mælsk eins og sú sem ég studdi. Vona að hin finnist fyrr en síðar. Okkur vantar þannig konu á þing.
Lög á flugmenn ekki útilokuð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Já, sumir pólítíkusar eiga bara að halda sig við sveitarstjórnarmálin. En það eru fleiri en HB sem hafa fallið í þessa gildru, yfirgefa borgarstjórastólinn eftir farsælan feril, jafnvel á miðju kjörtímabili til að fara í framboð til þings, og geta svo ekkert eftir að í ráðherrastólinn var komið. Ég nefni engin nöfn.
Pétur D. (IP-tala skráð) 11.5.2014 kl. 19:36
Það dugir ekki talandinn einn, það verður eitthvað að vera á bak við hann.
Kristján B Kristinsson (IP-tala skráð) 11.5.2014 kl. 19:44
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.