Færsluflokkur: Lífstíll

Fáránlega langt nám

Einu sinni enn leyfi ég mér að benda á að það er nánast orðið ævistarf að læra að verða kennari eða leikskólakennari. Hver á að standa í því að læra í 9 ár (menntaskólinn meðtalinn) til að þiggja fáeinar krónur fyrir mjög erfitt starf. Þótt menn hafi löngun til að vinna með börnum þá hljóta að vera takmörk fyrir því hvað fólk lætur bjóða sér.

Yfirvöld ættu að skammast til þess að stytta námið aftur. Þrjú ár eftir menntaskóla er feykinóg, það vitum við sem urðum kennarar eftir ennþá styttra nám og höfum bara staðið okkur þokkalega við að uppfræða íslenska æsku. 


mbl.is Færri vilja verða leikskólakennarar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fjögurra ára nám verður níu ár

Geggjunin er algjör. Það er ekki bara hrunið sem er ein allsherjar geggjun. Af einhverjum ástæðum mæla formenn stéttarfélaga sífellt með lengra námi á þeim forsendum að þá verði laun fólksins hærri.

Hvenær skyldu þessir formenn setjast niður og athuga hvað fólkið á að gera að loknu námi.
Tökum dæmi: Kennari sem á að kenna lestur, þarf hann 5 ár í háskóla. Leikskólakennari, sem á að kenna stafina A og B þarf hann 5 ára háskólanám.

Undirritaður lauk á sínum tíma landsprófi og var svo fjögur ár í Kennaraskóla. Nú þurfa menn fjögur ár í menntaskóla fyrst og ég held það sé pottþétt að svo bíði manna 5 ár í háskóla. Ekki veit ég betur en ég og mínir jafnaldrar hafi flestir orðið farsælir grunnskólakennarar. Launin eru svo annar kapituli og koma því í raun ekkert við hvaða nám okkur nægir til að sinna þörfum grunnskóla- og leikskólabarna.


mbl.is 260 þús. eftir 4 ára háskólanám
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Friðarsúlan er Gaga

Ennþá einu sinni er komið að því að Orkuveitan sói peningum með því að senda ljósgeisla þvert yfir himininn. Af hverju í ósköpunum þarf að spilla fegurð himinsins ár eftir ár. Skyldu menn ekki átta sig á því hvað geislinn er bjartur hérna niður við sjó rétt hjá Viðey.

Einu sinni hafði ég gaman af því að kíkja á stjörnumerkið Karlsvagninn, en ekki lengur. Þessi gervigeisli frá þessari svokölluðu friðarsúlu liggur beint í gegnum merkið séð heiman frá mér. Eitt árið enn bið ég um að menn leyfi fegurð himinsins að njóta sín án mengunar gervigeisla


mbl.is Lady Gaga er farin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Tjaldgestir ekki fullir lengur

Það er hundfúlt að nú er búið að breyta þessari frétt. Það vill til að ég á hana eins og hún var í gær, en þá var hún svona.............
---------------- Úrhelli og rok er í Hvanngili á Rangárvallaafrétti nú í kvöld. Enginn gestur gistir þar á tjaldstæði í kvöld, þeir færðu sig allir inn í skála og eru þeir báðir fullir að sögn skálavarðar.

Nú er það tekið skírt fram í fréttinni að það séu skálarnir sem eru fullir og ég reikna þá með því að það sé runnið af tjaldgestum.


mbl.is Tjaldgestir fóru allir inn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Kerlingarnar 3 munu útrýma kokkum úr grunnskólum

Ekki veit ég hversu oft hefur verið vitnað í þessar 3 kerlur. Eins og allir vita þá hafa þær ekkert betra að gera en rífast yfir kjötbollum og öðrum álíka óþverra sem kokkar í grunnskólum bera á borð.
Eins og allir vita þá eru kjötbollur stórhættulegur matur, en annað má segja um kálhausa sem æskilegt væri að hvert grunnskólabarn stífði úr hnefa í alla mata.

Staðreyndin er að allir sem vinna við mötuneyti grunnskólanna þeir hafa það að leiðarljósi að börnin fái hollan og góðan mat. Sífelldar tilvitnanir í spekinga, sem fitna eins og púkinn á fjósbitanum við það eitt að sjá nafnið sitt á prenti - þær eru ógnun við þá fáu sem eftir eru í mötuneytunum, en þar hefur niðurskurðarhnífnum svo sannarlega verið beitt.


mbl.is Matur án eftirlits
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fann ekki Bankasýsluna

Eftir vandlega íhugun hef ég ákveðið að taka ekki að mér starf forstjóra Bankasýslunnar. Satt að segja kemur þessi ákvörðun mín ekki til af góðu. Ég kunni ekki við að opinbera vanþekkingu mína, en ég hreinlega fann ekki Bankasýsluna. Það næsta sem ég komst var Barðastrandasýsla og hún er of langt í burtu. Hvar í ósköpunum getur hún verið? 
mbl.is Páll tekur ekki starfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Veist þú af hverju hundar hata bréfbera

Hundar eru merkilegt fyrirbæri. Minn var ótrúlega fljótur að átta sig á því að bréfberinn var rauðklæddur. Síðan lætur hann ófriðlega, ef hann sér rauðklætt fólk nálgast húsið. Svo eru hundar svo þefnæmir að þeir mundu gelta á bréfberann þótt það væri bundið fyrir augun á þeim.

En það þykir sannað hvað gerir hundana svona æsta. Venjulegur gestur kemur að húsinu, hringir og honum er vel tekið af húsráðendum. Bréfberinn gengur að húsinu, fiktar í bréfalúgunni og fer svo án þess að nokkur komi til dyra og fagni honum. Þetta tekur hundurinn þannig að bréfberinn sé óvelkominn og ætlar svo sannarlega að hjálpa eiganda sínum að fæla hann burtu. Það er því hægara sagt en gert að kenna hundum að bréfberinn sé hið besta skinn og sé að vinna mikilvægt starf.

Ég verð að viðurkenna að ég hef mikla samúð með bréfberum, enda hefur hundum fjölgað gífurlega á undanförnum árum.


mbl.is Hundur beit bréfbera
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Erfitt að vera karlmaður í dag.

Beauty-and-the-Beast-beauty-and-the-beast-6524870-500-638

Þegar fram koma mál eins og þetta gagnvart Gunnari í Krossinum þá stendur maður ráðþrota. Allir sem að málinu koma þeir tapa, því allt í einu er öll þjóðin farin að dæma. Þeir sem lenda í svona málum að ósekju bíða þess raunverulega aldrei bætur, því alltaf eru einhverjir í þjóðfélaginu, sem álíta þá hina verstu þrjóta.

Þegar fullorðnir karlar líta til baka þá muna þeir flestir eftir því að hafa farið á fjörurnar við ungar stúlkur. Þetta hljómar hryllilega, þangað til fólk leiðir hugann að því að þá voru þeir líka ungir. Mér finnst oft að samfélgagið gleymi þessu. Ef einhver kona segði til dæmis frá því að undirritaður hefði reynt við 14 ára stúlku þá mundi ég sennilega aldrei ná að segja að þetta væri satt, en að vísu hefði ég þá verið á sama aldri og nú væri þessi unga stúlka á sjötugsaldri. 

Ég held ég hafi aldrei vitnað í biblíuna í mínu bloggi, en  best að bæta úr því.

Dæmið ekki til þess að þér verðið ekki sjálfir dæmdir.


mbl.is Gunnar stígur til hliðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hér er rapp fyrir Erp og Móra

Eiður og Móri
alltaf að rappa,
allir virðast
þekkja þá kappa.
Þeirra á milli
þó er víst brestur.
Rífast um hver
er rappari bestur.
Ýmsa dreymir
um það að sætta.
En eftir þetta
eflaust þeir hætta.
Erpur var sko
ansi hreint hissa.
Elskan mín Móri,
er þetta byssa.
Hættu nú kappinn
hérna að skoppa
Víst skal nú verjast
vopnið er moppa.
Friðinn við slítum
ferlega í sundur,
mér finnst þetta vera
forljótur hundur.
Af hverju reiðast
og illindi sýna,
ég áfram skal bjóða
sáttahönd mína.
mbl.is Allt sprakk í loft upp
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband