Færsluflokkur: Lífstíll
Alltaf verið að sussa á mann á bókasafninu
11.11.2013 | 08:01
En þessi klósett fyrir fatlaða eru alveg kjörin. Þau eru í fyrsta lagi nánast alltaf laus og svo er eins og starfsfólkið geri bara ráð fyrir því að það fylgi því stunur og vesen, þegar fatlaðir þurfa að nota þau.
Allavega varð aldrei nein truflun og fólki þótti það greinilega eðlilegt að það hefði verið aðstoðarmaður með í för. Alveg dásamlegt að hvíla sig aðeins frá bóklestri sagði parið, sem taldi líklegt að þau mundu kanna aðstæður fyrir fatlaða á bókasöfnum landsins næsta sumar.
![]() |
Stunda kynlíf á salernum fyrir fatlaða |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt 12.11.2013 kl. 12:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Fleiri og fleiri lesa ekki neitt
8.11.2013 | 10:28
Ég er steinhættur að skilja þessar kannanir varðandi lestur. Samkvæmt þeim er hreinlega erfitt að finna unga stráka sem lesa sér nokkuð til skemmtunar. Þeir pína sig til að lesa námsbækurnar og svo hljóta þeir nú að lesa skilaboð í símunum. Stelpurnar lesa aðeins meira sér til gamans.
Annars var það að koma í ljós að ungir foreldrar virðast kíkja á símann sinn á sex mínútna fresti að jafnaði og miklu sjaldnar á börnin sín. Börnunum er sagt að bíða, en síminn fær aldrei svoleiðis meðferð. Það er því lítill tími fyrir ungt fólk að lesa heilu rafbækurnar og vel skiljanlegt að útgáfan hérlendis fari hægt af stað. Svo getur nú líka vafist fyrir mörgum að pakka inn rafbókinni.
Annars er ég einn af þeim eldri, sem dýrka Kindle og á þar allar bækur Agötu Christie á ensku og ótrúlega margar bækur hennar á spænsku. Þetta tæki er algjör dýrgripur og fer með mér í öll ferðalög, en engin venjuleg bók.
Vonandi átta yfirvöld menntamála sig í tíma og ráðast í stórfellt átak til að hjálpa öllum þeim fjölda unglinga, sem í dag er illa læs eða nánast ólæs.
![]() |
Fáar nýjar rafbækur um jólin |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ljósmengun einu sinni, einu sinni enn
10.10.2013 | 08:24
Ár eftir ár kemur upp dekur við gamla konu og stjörnuhiminn er mengaður af ljóssúlu, sem nær óravegu upp til himins. Borgarstóri dressar sig upp í friðarpeysu og allt á þetta að vera voðalega flott, en er í raun ekki annað en hroðalegt snobb.
Ég hef aldrei skilið þessa ljósmengun og það pirrar mig að fá ekki að horfa á himininn héðan úr Grafarvoginum án þessa fyrirbæris.
Í guðanna bænum hættið þessu árlega snobbi og hættið að láta Orkuveituna greiða fúlgur fjár fyrir allt þetta ónauðsynlega ljós.
![]() |
Mikill mannfjöldi fylgdist með |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Auðvitað á að stytta nám!
26.8.2013 | 15:41
Forvitnilegt væri að vita hvernig allar þessar kannanir leggjast í Illuga Gunnarsson. Var það ekki bara í gær sem sagt var frá svokallaðri skimun þar sem er afturför í lestri.
Var það ekki fyrir stuttu, sem sagt var að ótrúlega há prósenta unglinga væri illa læs við lok grunnskóla.
Staðan er svo slæm að hún getur varla versnað. Lengra nám kallar ekki endilega á meiri menntun eða meiri vinnugleði. Óheyrilega langt nám getur kallað á námsleiða og slakan árangur.
Hvenær skyldi koma að því að framhaldsskólar þurfi að setja upp lestrarkennslubrautir á fyrsta ári?
![]() |
Ekkert samráð við kennara |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Banna býflugnarækt hérlendis!
21.8.2013 | 12:10

Er virkilega ekki nóg af skorkvikindum hérlendis þótt menn séu ekki að flytja þau inn í massavís. Hver nýneminn eftir annan gerir manni lífið leitt og birki og víðir er ekki svipur hjá sjón.
Ég veit að vísu að menn ætla sér að fá hunang frá býflugunum, en ég held að Íslendingar hafi fæðst með fóbíu fyrir þessum röndóttu flugum. Frá því ég var krakki hef ég verið sjúklega hræddur við það sem ég kallaði randaflugur, en heita víst hunangsflugur. Ekki bætti það þegar geitungar bættust í hópinn.
Það hefur verið huggun harmi gegn að menn hafa reynt að útrýma þeim búum sem fundist hafa í húsagörðum og húsum, en nú búa sumir við að nágranninn á þúsundir flugna, sem hann fagnar og telur það ganga næst mannsmorði, ef maður stuggar við svosem einni sem er á eilífu flugi yfir garðinn hjá manni sjálfum.
P.s. hér er mynd af nýjum landnema, sem hefur eyðilagt hjá mér reklavíðinn. Þetta er lirfa asparglyttu.

![]() |
Býflugurnar sluppu út |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (14)
Gefum Kínverjum Ísland!
8.8.2013 | 06:36
Seint mun ég þreytast á að benda fólki á einhvern gáfaðasta mann Íslandssögunnar. Sá hét Einar og var kallaður Þveræringur.
Fyrir mörgum öldum síðan þá fór Noregskonungur fram á að fá Grímsey til eignar. Þetta fannst flestum Íslendingum lítið mál, því kóngsi hafði reynst okkur vel, en þá segir Einar: Ef Noregskonungur er með her í Grímsey, er þá nokkuð langt í land til að skikka okkur til, ef við sýnum ekki nægilega hlýðni. Það var eins og hinir vöknuðu af vondum draumi og ekki fékk kóngur Grímsey. - Það var því neyðarlegt, þegar Nupo vildi jörð og hún væri líka kennd við Grím.
Kínverjar geta alveg gleypt okkur í einum munnbita án þess að fá illt í magann, en ætli okkur gæti ekki orðið bumbult. - Spyr sá sem ekki veit.
![]() |
Kínverjar vilja kaupa Íslandsbanka |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 06:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
Á vorin kemur fólk með bilaðar gamlar konur!
30.7.2013 | 10:41
Ég er áskrifandi að Mogganum. Þar er þessi frétt í dag og ekkert út á hana að setja. Hins vegar fór ég grútsyfjaður - línuvillt og út koma þessi hrikalega setning eins og hér í fyrirsögn.
Fréttin er frábær til að vekja athygli á því hvernig margir þjónustuaðilar í litlum plássum verða að vera altmuligtmænd og redda allskyns vandamálum ferðamanna að sumri og sinna gömlum konum haust og vetur.
Annars var ég vel vaknaður á öðrum kaffibolla, þegar ég las að einhverjar væru orðnar slitnar og bilanagjarnar. Kveikti strax á því að þar væri átt við bifreiðarnar frá óábyrgum bílaleigum en ekki gömlu konurnar á Patreksfirði.
![]() |
Leigja bíla sem ekki eru boðlegir |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 10:45 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Niðrandi orð um reiðfatnað.
31.5.2013 | 16:26
Nú veit ég ekki hvaða orð þessir dómarar hafa haft um hrossin, en ég hef verið að horfa aðeins á sýningar t.d. ístöltið í vetur.
Það sem hefur helst vakið athygli mína eru reiðfötin. Ekki verður annað séð en þeir sem selja fatnaðinn hérlendis hafi verið að selja svikna vöru. Það var t.d. greinilegt í ístöltinu í vetur að fötin höfðu hlaupið illilega í þvotti svo það hefur verið stórkostlegt vandamál að ná að hneppa að sér brókinni og mátti þakka fyrir að saumar gáfu sig ekki á maga, lærum og rassi. Það verður að taka þessa menn, sem selja reiðfatnað og gefa þeim einn gúmoren. Svona háttalag gengur ekki lengur.
![]() |
Þetta er hið leiðinlegasta mál |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ófært að kalla leiðina Þröskulda!
6.5.2013 | 09:51
Það eru duttlungar örlaganna að eftir að heimamenn kröfðust þess að vegurinn yrði kenndur við þröskulda þá mynduðu veðurguðirnir hina og þessa þröskulda allt fram á vor. Væri nú ekki bara rétt að tala um veginn um Arnkötludal aftur og sjá hvað veðurguðirnir gera í málinu.
http://esv.blog.is/img/tncache/300x300/da/esv/img/233062229.jpg
![]() |
Ófærar heiðar á Vestfjörðum |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Af hverju getur kanill verið hættulegur?
22.4.2013 | 13:44

Allt er best í hófi segir máltækið. Þeir eru þó til sem trúa því að kanill sé mikið undrameðal og geti jafnvel læknað mann af sykursýki 2. Ef ég segði ykkur að kanill gæti tuttugufaldað einhverja líkamsstarfsemi mundi ykkur þá lítast á blikuna.
Þannig er þetta nefnilega með kanil. Engan skyldi því undra að það geti verið hættulegt að gleypa fulla matskeið af þessu efni. Glúkósi (blóðsykur) er bráðnauðsynlegur öllum frumum. Hann á að síast inn í frumurnar í mestu rólegheitum, en það er einmitt glúkósinn sem kanillinn hefur svona mikil áhrif á. Já, kanill getur aukið efnaskiptin hjá glúkósa tuttugufalt. Engin furða að hann geti breytt einhverju varðandi sykursýki 2, en í því tilfelli hafa frumurnar ekki fengið nægan glúkósa.
Þeir sem halda því fram að kanill geti dregið úr magni blóðsykurs hafa því ekki rétt fyrir sér heldur verður upptaka frumanna svo hröð að minna verður eftir af blóðsykri í æðakerfinu. -
![]() |
Þetta er ekki svalt, þetta er hættulegt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)