Hvaða mánaðardag er 17. júní í ár?
19.3.2014 | 22:01
Sagan hér um 118 er anzi skemmtileg. Stundum gleymir maður að hugsa fyrst, en spyrja svo. Ég man eftir því í æsku að mæt kona sagði: Hvaða mánaðardag verður aðfangadagur í ár. Nú svo má ekki gleyma hinum hafnfirska kynni sem sagði: Góðir Hafnfirðingar, í dag er 17. júní um land allt. En það er hreint ekki sjaldgæft að menn rugli saman orðunum vikudagur og mánaðardagur og því vert að benda á að þannig hittist á að þjóðhátíðardagurinn verður þann sautjánda í ár.

![]() |
Hvað er þá númerið hjá 118? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.