Verð að klára allt vínið fyrir laugardaginn.

Í þessum hasar gleymdi ég því alveg að það er líka opið á laugardaginn í vínbúðunum. Ég ætlaði að byrja létt uppi í bústað og klára þessar 48 dósir af páskabjórnum, en nú sé ég að það er óþarfi að vera að byrja svona rólega enda verðum við 4 fullorðnir svo við förum létt með þetta.

 Ætli maður klári ekki bara þessar fjórar hvítvínsflöskur með laxinum í kvöld og vakni snemma til að rétta sig aðeins af. Þrjár rauðvín með hangiketinu annað kvöld og snögg ferð í bæinn eftir meiru á laugardaginn. Skál fyrir Heiðrúnu.
mbl.is Löng biðröð eftir víni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband