Sannur sjálfboðaliði þarf enga umbun

Hver í ósköpunum fékk þá flugu í höfuðið að sjálfboðaliðar þyrftu einhverja ákveðna umbun. Í fyrra voru þeir óskaplega margir sem hlupu fyrstir til að fá tjaldstæði og manni var sagt að svo og svo margir virtust skrá sig vegna eiginhagsmuna þ.e.a.s. til að fá tjaldstæði en ekki af einhverri brennandi löngun til að gera gagn. Slíkt fólk er ekki sjálfboðaliðar í hjarta sínu.

Sjálfboðaliði er eins og maður í björgunarsveit, sem skráir sig í þeirri von að fyrr eða síðar geti þátttaka hans skilið milli lífs og dauða fyrir þann sem hefur farið villur vegar.

Sjálfboðaliði og eiginhagsmunapotari eiga enga samleið. Í guðanna bænum hættið þessari vitleysu og sjáið hversu margir sannir sjálfboðaliðar skrá sig.

 


mbl.is Rigning og vindur á þjóðhátíð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óskiljanleg grimmd

Það er eins og grimmdarseggir jarðarinnar séu sífellt að verða grimmari. Í rauninni er alveg fáránlegt að við skulum vera komin á þessa kúlu og þar geti menn ekki unað í friði og spekt heldur þurfi sífellt að koma upp flokkar sem hundelta aðra og hika ekki við að taka þá af lífi.

 Meira að segja í Noregi eru menn nú dauðhræddir um að einhver öfgasamtök ætli að láta til sín taka. Eins og svo oft áður getur maður spurt: Hvar endar þetta? og auðvitað er EKKERT SVAR.


mbl.is Talíbanar drepa fimmtán manns
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Og þetta viljum við!

Hugsið ykkur stöðuna. Vestræn lönd hafa af einskærri góðmennsku leyft fólki að setjast þar að. Þeir trúa því í barnaskap sínum að Islamistar muni þakka fyrir þessa góðmennsku og taka upp okkar vestrænu gildi. En það er aldeilis ekki svo. Lesið bara um vanda Norðmanna. Ungir afkomendur innflytjenda (sem nú eru Norðmenn) hafa farið og barist erlendis og nú hyggjast þeir gera hervirki í því landi sem reyndist þeim svo vel. 

Já, og í Noregi hafa einmitt stjórnmálamenn verið það sem sumir kalla óskaplega "liberal"

Þjóðir geta barist gegn utanaðkomandi ógn, en hugsið ykkur stöðuna þegar ógnin og illskan kemur frá eigin borgurum.


mbl.is Ekki ástæða til að vara við ferðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Allt er þegar þrennt er

Fyrst var það blár lax, svo rann heil fjallshlíð fram við Öskju. Hvort tveggja virðist ekki eiga sér hliðstæðu svo menn muni. Að vísu eru merki um svona framskrið fyrir norðan frá því löngu fyrir landnám, man ekki alveg hvað staðurinn heitir.

En þjóðtrúin segir að komi eitthvað óvanalegt fyrir mann tvisvar þá sé nánast öruggt að það gerist einu sinni enn. Dæmi eru um að menn verði mjög fegnir þegar þriðja tilvikið er komið, því sá maður er ekki til sem trúir því að það gerist í fjórða sinn.

Svona er hjátrúin skemmtileg og nú er bara að sjá hvað verður númer 3. Varla bleikur fíll, en eins og danskurinn segir: Hvað ved jeg. 


mbl.is „Bráðabani“ að fara niður að vatninu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem aldrei hefur gerst getur alltaf gerst aftur.

Það skal fúslega viðurkennt að þessi færsla er sett hér til að gera góðlátlegt grín að vísindamönnum. Varla var blái laxinn kominn á land þegar vísindamaður taldi sig með það nokkuð á hreinu af hverju hann væri blár, þótt hann viðurkenndi að hann hefði aldrei heyrt af svona fyrirbæri áður.

Sama á nú við um Öskjuvatn og nágrenni. Engin dæmi eru um svona náttúruhamfarir, en strax hefur heyrst í vísindamönnum, sem eru með þetta nokkuð á hreinu.

Menn virðast telja það til minnkunar að hafa ekki svar við öllu: Uppáhaldspersóna mín í bókmenntum leysti þetta á einfaldan hátt og sagði: Ég er bara bangsi með mjög lítið vit.

 


mbl.is Stór skriða féll í Öskjuvatn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ég veit af hverju það stafar sem aldrei hefur gerst áður.

Já, ég hef aldrei nokkurn tímann heyrt um svona lit á laxi, en veit samt af hverju þetta stafar. Semsagt þarna er hreinlega um vansköpun að ræða og hananú. Þetta þarf ekki að vera flókið. 

Þetta er ekki arfgengur galli, það þori ég að fullyrða, þótt ekkert annað dæmi sé um þetta og þar af leiðandi engar rannsóknir til. Rannsóknir eru bara til trafala og langbest að birta niðurstöðuna án rannsókna. Eins og ég sagði áðan: Þetta þarf ekki að vera flókið.

Vona bara að enginn verði svo vitlaus að spyrja: En af hverju kemur slík vansköpun upp, þá yrði ég kannski kjaftstopp smástund,  en tæpast lengi 


mbl.is Bláa laxinn vantar hormón
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hvernig veiðir maður bláan lax?

DSCN3212

Í gamla daga var Ómar Ragnarsson með þennan fílabrandara: 

Hvernig skýtur maður bláan fíl. Svar: Með blárri fílabyssu.
Hvernig skýtur maður hvítan fíl. Allir sögðu: Með hvítri fílabyssu.
Þá sagði Ómar: Nei, maður tekur utan um hálsinn á hvíta fílnum þangað til hann er orðinn blár og þá notar maður bláu fílabyssuna.

En að öllu gríni slepptu. Er þetta ekki nákvæmlega það sem við höfum gert. Við höfum tekið náttúruna slíku heljartaki að fyrr eða síðar hlaut maður að sjá það í einhverju stökki, sem enginn fær skilið. Fyrstu viðbrögð sérfræðings við bláa laxinum voru þau að þetta væri mjög óvanalegt. Hann hreinlega fékk sig ekki til að segja að þetta væri einstætt í heiminum. 

Sjáið til dæmis hvernig Orkuveitan hefur leikið landið þar sem eitt sinn stóðu skíðaskálar ÍR, Vals og Víkings


mbl.is Blái laxinn veiddur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Yndislegt nafn og Atlavík

Í seinni tíð hef ég spáð meira í mannanöfn en áður. Norður í Skálholtsvík hitti ég fyrir konu sem heitir Ylfa. Ég hef aðeins einu sinni hitt stúlku með því nafni, en einhvern veginn heillaðist ég af því. Nú svo finnst mér Tinna alveg einstakt og ekki verra ef Dögg fylgir á eftir. Hér í þessum pistli steinhætti ég að spá í veðrið þar eð tjaldvörðurinn heitir Myrra Mjöll.

Svo ég haldi áfram þá hitti ég nokkrar Liljur fyrir norðan og þær voru allar einstök ljúfmenni og vildu allt fyrir mig gera. Kannski er það bara vegna þess að ég á barnabarn, sem heitir Lilja Rós að ég vil endilega bæta fleiri blómanöfnum í þennan hóp eins og Rósu og Fjólu.

En auðvitað má ekki gleyma að með einu lagi varð Atlavík að eins konar fyrirheitnum stað  og alla dreymdi um að koma þangað. Hver man ekki þetta ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Liggur við að ég fari upp á háaloft að leita að gamla gula tjaldinu.

Í Hallormsstaðaskógi
er angan engu lík.
Og dögg á grasi glóir
sem gull í Atlavík.
Og fljótsins svanir sveipast
í sólarlagsins eld.
Og hlæjandi, syngjandi,
frelsinu fagnandi,
fylgdumst við burtu það kveld.


mbl.is Sótt í sól og sungið og trallað í Atlavík
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Slysaskot í Palestínu

Ekkert ljóð jafnast á við ljóð Kristjáns frá Djúpalæk. Þar er breskur dáti gjörsamlega miður sín af því að hann skaut litla stúlku (væntanlega í misgripum fyrir pabba hennar). Ekkert bendir manni betur á þá spurningu, hvort einhver geti virkilega fundið friðþægingu eftir að hafa drepið aðra mannveru. (Ath. friðþæging er í raun aðgerð til að bæta fyrir brot).

Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.


Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.


Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.


Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
mbl.is Blóðugasti dagurinn í fimm ár
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vanvirða gegn konum sí og æ

Þessi bílastæði, sem eru sérmerkt konum líta kannski í fyrstu þokkalega út, þótt enginn skilji af hverju konur þurfi sérstæði. Svo kemur þetta fáránlega í ljós. Þau eru 30 sentímetrum breiðari en önnur stæði. Biðst afsökunar en ég er bara barnakennari og set allt fram á þann máta:
Er hægt að segja á ljósari hátt: KONUR ERU VERRI BÍLSTJÓRAR EN KARLAR.

Og svo enn og aftur að allt öðru máli. Trúarskoðanir þar sem konum er fyrirskipað að hylja sig frá toppi til táar. Já, þar sem eiginmaðurinn hefur rétt til að berja konu sína sundur og saman fyrir það sem ekkert er en hann tekur upp hjá sjálfum sér til að skapa virðingu. Þetta er trú karlanna þarna en vissulega skapa þeir ekki virðingu heldur ótta og að lokum hatur.

 Svo koma 2 framsóknarmenn í landi í órafjarlægð, berja sér á brjóst í vandlætingu yfir því að menn með slíkar skoðanir fái ekki að reisa hús sér til dýrðar á mest áberandi stað í Reykjavík.

Hættum þessu. Lítilsvirðing á hvergi rétt á sér og mér finnst það fáránlegt að menn (þótt þeir séu Framsóknarmenn) geti ekki séð þetta. 

Ég hef sem grunnskólakennari alltaf unnið þar sem meirihluti vinnufélaganna hafa verið konur. Þær hafa  verið frábærir vinnufélagar og ég skal hundur heita, ef ég berst ekki fyrir jafnrétti þeim til handa hvar og hvenær sem ég get. Annað væri óskiljanlegt fyrir mann, sem átti móður sem fæddist þann 19. júní 1915, daginn sem konur á ÍSLANDI fengu kosningarétt og kjörgengi. 


mbl.is Sérmerkt stæði fyrir konur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hinn þögli minnihluti opnar munninn

Hversu oft hefur það ekki verið þannig að einhverjir orðhákar hafa talað og talað og náð sínu fram.
Menn vita til dæmis ósköp vel hver talaði Vaðlaheiðargöngin í gegn, þótt allir vissu að það væri frábær vegur um Víkurskarð. Ég græt það ekkert þótt náttúruöflin hafi tekið til sinna ráða.

Nú vill hins vegar svo skemmtilega til að hinn þögli meirihluti hefur fengið mál og lætur til sín heyra.
Þeir fýlupokar sem vilja ekki hlusta á rödd fólksins mega mín vegna taka pokann sinn. Ég er ekkert hissa þótt Sigrún skilji þá ekki. Mér liggur við að segja að það skilji þá enginn frekar en manninn sem í oflæti sínu sá ekki veginn um Víkurskarð, en vantaði minnismerki um eigið ágæti.
mbl.is „Ég skil ekki mennina“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bjóðum bara hinn vangann, ef við erum lamin utanundir.

Ég hef aldrei getað skilið af hverju við Vesturlandabúar eigum að sýna endalausa góðmennsku og þolinmæði gagnvart fólki, sem traðkar á okkar menningu og trúarbrögðum. Hér er sagt frá islamskri hreyfingu sem gefur kristnu fólki tvo möguleika.
1. Taka upp islamstrú
2. Borga verndargjald 
nú ef ekki þá verða þeir drepnir.

Nú ef menn átta sig ekki þá þýðir þetta einfaldlega: Þið eigið engan rétt hér í okkar landi.Devil

Segjum nú að hópur Íslendinga mundi skipa Islamistum hér á landi að taka kristna trú, borga verndartoll eða vera drepnir mundu þá bara aðrir Íslendingar yppa öxlum eins og þetta væri  bara allt í lagi. Nei, við myndum samstundis  leggja til að þeir sem aðhyllast þessi trúarbrögð og sýna réttindum kvenna fáheyrða lítilsvirðingu fengju lóð á mest áberandi stað í Reykjavík. Svona erum við nú yndislega víðsýn og góð. 
InLove


mbl.is Reka kristna menn frá Mosul
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Fáránleg laxveiði!

Menn eru sífellt að fjarlægjast uppruna sinn og taka upp á einhverju, sem er bara bull. Eitt af þessu eru laxveiðar þar sem laxinn er látinn engjast á öngli tímunum saman þangað til hann getur ekki meir og gefst upp. Þegar þannig er komið þá kemur þessi "góðhjartaði" laxveiðimaður og segir að þetta hafi nú allt verið í plati. Að í raun sé hann sjálfur hið besta skinn og ætli að leyfa laxinum að lifa.

Að mínu mati á öll veiði að snúast um þetta upprunalega. Maður veiðir af því að það vantar mat. Ég sé satt að segja ekki neitt manneskjulegt við að fara svona með laxinn. Þessar nýju tölur yfir lélegar heimtur þrátt fyrir gífurlegar rigningar ættu að vera mönnum umhugsunarefni. Hvar er nú allur þessi lax, sem þessir góðu menn gáfu líf?Af hverju í ósköpunum gengur hann ekki í árnar svo menn geti farið svona með hann aftur? 


mbl.is Dræm laxveiði kemur mönnum í opna skjöldu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að skapa helvíti á jörðu!

Úti í himingeimnum eru milljónir ef ekki milljarðar sóla eins og okkar. Í kringum þessar sólir gengur ógrynni stjarna. Við erum pínulítið peð í alheiminum en þetta eina peð er eitrað eins og skákmenn kalla það. Já, það er meira að segja baneitrað og tekst að skapa slíkan glundroða í alheimsskákinni að þeir sem með skákinni fylgjast eru agndofa. Það versta er auðvitað að við sem kunnum vart mannganginn lítum á  peð, sem eitthvað nauðaómerkilegt á taflborðinu og komum af fjöllum þegar þau láta til sín taka. Já, það er með hreinum ólíkindum hversu grimmir íbúar þessarar litlu kúlu geta verið hver við annan.


mbl.is „Þetta eru ekki hamfarir heldur helvíti“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband