Færsluflokkur: Lífstíll
Slysaskot í Palestínu
20.7.2014 | 19:46
Lítil stúlka. Lítil stúlka.
Lítil svarteyg dökkhærð stúlka
liggur skotin.
Dimmrautt blóð í hrokknu hári.
Höfuðkúpan brotin.
Ég er Breti, dagsins djarfi
dáti, suður í Palestínu,
en er kvöldar klökkur, einn,
kútur lítill, mömmusveinn.
Mín synd er stór. Ó, systir mín.
Svarið get ég, feilskot var það.
Eins og hnífur hjartað skar það,
hjarta mitt, ó, systir mín,
fyrirgefðu, fyrirgefðu,
anginn litli, anginn minn.
Ég ætlaði að skjóta hann pabba þinn.
![]() |
Blóðugasti dagurinn í fimm ár |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vanvirða gegn konum sí og æ
20.7.2014 | 12:10
Þessi bílastæði, sem eru sérmerkt konum líta kannski í fyrstu þokkalega út, þótt enginn skilji af hverju konur þurfi sérstæði. Svo kemur þetta fáránlega í ljós. Þau eru 30 sentímetrum breiðari en önnur stæði. Biðst afsökunar en ég er bara barnakennari og set allt fram á þann máta:
Er hægt að segja á ljósari hátt: KONUR ERU VERRI BÍLSTJÓRAR EN KARLAR.
Og svo enn og aftur að allt öðru máli. Trúarskoðanir þar sem konum er fyrirskipað að hylja sig frá toppi til táar. Já, þar sem eiginmaðurinn hefur rétt til að berja konu sína sundur og saman fyrir það sem ekkert er en hann tekur upp hjá sjálfum sér til að skapa virðingu. Þetta er trú karlanna þarna en vissulega skapa þeir ekki virðingu heldur ótta og að lokum hatur.
Svo koma 2 framsóknarmenn í landi í órafjarlægð, berja sér á brjóst í vandlætingu yfir því að menn með slíkar skoðanir fái ekki að reisa hús sér til dýrðar á mest áberandi stað í Reykjavík.
Hættum þessu. Lítilsvirðing á hvergi rétt á sér og mér finnst það fáránlegt að menn (þótt þeir séu Framsóknarmenn) geti ekki séð þetta.
Ég hef sem grunnskólakennari alltaf unnið þar sem meirihluti vinnufélaganna hafa verið konur. Þær hafa verið frábærir vinnufélagar og ég skal hundur heita, ef ég berst ekki fyrir jafnrétti þeim til handa hvar og hvenær sem ég get. Annað væri óskiljanlegt fyrir mann, sem átti móður sem fæddist þann 19. júní 1915, daginn sem konur á ÍSLANDI fengu kosningarétt og kjörgengi.
![]() |
Sérmerkt stæði fyrir konur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
Hinn þögli minnihluti opnar munninn
19.7.2014 | 19:15
Menn vita til dæmis ósköp vel hver talaði Vaðlaheiðargöngin í gegn, þótt allir vissu að það væri frábær vegur um Víkurskarð. Ég græt það ekkert þótt náttúruöflin hafi tekið til sinna ráða.
Nú vill hins vegar svo skemmtilega til að hinn þögli meirihluti hefur fengið mál og lætur til sín heyra.
Þeir fýlupokar sem vilja ekki hlusta á rödd fólksins mega mín vegna taka pokann sinn. Ég er ekkert hissa þótt Sigrún skilji þá ekki. Mér liggur við að segja að það skilji þá enginn frekar en manninn sem í oflæti sínu sá ekki veginn um Víkurskarð, en vantaði minnismerki um eigið ágæti.
![]() |
Ég skil ekki mennina |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Bjóðum bara hinn vangann, ef við erum lamin utanundir.
19.7.2014 | 11:42
Ég hef aldrei getað skilið af hverju við Vesturlandabúar eigum að sýna endalausa góðmennsku og þolinmæði gagnvart fólki, sem traðkar á okkar menningu og trúarbrögðum. Hér er sagt frá islamskri hreyfingu sem gefur kristnu fólki tvo möguleika.
1. Taka upp islamstrú
2. Borga verndargjald
nú ef ekki þá verða þeir drepnir.
Nú ef menn átta sig ekki þá þýðir þetta einfaldlega: Þið eigið engan rétt hér í okkar landi.
Segjum nú að hópur Íslendinga mundi skipa Islamistum hér á landi að taka kristna trú, borga verndartoll eða vera drepnir mundu þá bara aðrir Íslendingar yppa öxlum eins og þetta væri bara allt í lagi. Nei, við myndum samstundis leggja til að þeir sem aðhyllast þessi trúarbrögð og sýna réttindum kvenna fáheyrða lítilsvirðingu fengju lóð á mest áberandi stað í Reykjavík. Svona erum við nú yndislega víðsýn og góð.
![]() |
Reka kristna menn frá Mosul |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Fáránleg laxveiði!
19.7.2014 | 07:19
Menn eru sífellt að fjarlægjast uppruna sinn og taka upp á einhverju, sem er bara bull. Eitt af þessu eru laxveiðar þar sem laxinn er látinn engjast á öngli tímunum saman þangað til hann getur ekki meir og gefst upp. Þegar þannig er komið þá kemur þessi "góðhjartaði" laxveiðimaður og segir að þetta hafi nú allt verið í plati. Að í raun sé hann sjálfur hið besta skinn og ætli að leyfa laxinum að lifa.
Að mínu mati á öll veiði að snúast um þetta upprunalega. Maður veiðir af því að það vantar mat. Ég sé satt að segja ekki neitt manneskjulegt við að fara svona með laxinn. Þessar nýju tölur yfir lélegar heimtur þrátt fyrir gífurlegar rigningar ættu að vera mönnum umhugsunarefni. Hvar er nú allur þessi lax, sem þessir góðu menn gáfu líf?Af hverju í ósköpunum gengur hann ekki í árnar svo menn geti farið svona með hann aftur?
![]() |
Dræm laxveiði kemur mönnum í opna skjöldu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 07:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Að skapa helvíti á jörðu!
18.7.2014 | 16:07
Úti í himingeimnum eru milljónir ef ekki milljarðar sóla eins og okkar. Í kringum þessar sólir gengur ógrynni stjarna. Við erum pínulítið peð í alheiminum en þetta eina peð er eitrað eins og skákmenn kalla það. Já, það er meira að segja baneitrað og tekst að skapa slíkan glundroða í alheimsskákinni að þeir sem með skákinni fylgjast eru agndofa. Það versta er auðvitað að við sem kunnum vart mannganginn lítum á peð, sem eitthvað nauðaómerkilegt á taflborðinu og komum af fjöllum þegar þau láta til sín taka. Já, það er með hreinum ólíkindum hversu grimmir íbúar þessarar litlu kúlu geta verið hver við annan.
![]() |
Þetta eru ekki hamfarir heldur helvíti |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar illskan tekur völdin
18.7.2014 | 08:48
Þessa dagana hugsa allir það sama. Getur verið að valdafíkn Pútíns sé svo mikil að hann svífist einskis. Það er svosem ekkert nýtt að menn framkvæmi voðaverk og reyni svo að klína sökinni á annað land. Þetta er þekkt varðandi upphaf ákveðinna styrjalda.
Það sem venjulegt fólk spyr sig er: Getur mannvonska virkilega komist á þetta hátt stig.
Lítum til Noregs þar sem enginn skilur hvernig Brevik fékk sig til að gera það sem hann gerði.
Já, þota frá sama flugfélagi hvarf fyrir stuttu síðan. Þrátt fyrir gífurlega leit þá fannst engin sönnun um afdrif hennar og eins og áður hugsa allir og hugsa, en enn er EKKERT SVAR.
Hvað sagði ekki Davíð:
Þegar sólin dvelur bak við drungaleg ský.
Þá er hún að gráta með Guði yfir því
hve myrkið er elskað mannheimum í.
![]() |
298 um borð - 173 Hollendingar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:47 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Rödd fólksins og framsókn
1.6.2014 | 01:08
Það er því miður alltof algengt að stjórnmálamenn setji upp helgislepjusvip og tali þvert á hug fólks. Það er óttaleg klikkun, ef þeir halda að fólk vilji byggingar þar sem hesturinn tók forðum á móti manni milli Hringbrautar og Suðurlandsbrautar.
Í fyrsta lagi vill enginn byggingar þarna og ég hélt að atburðir undanfarinna ára hefðu sýnt fólki að það er himinn og haf milli hugsanagangs kristinna mann og múslima. Þótt ákveðnir menn geti verið blíðir á svipinn þá finnst þeim ekkert að því að hendur séu höggnar af þjófum, konur verði að ganga um í nokkurs konar tjaldi o.s.fv. - En það er gott að mönnum hefnist fyrir að hlusta ekki.
![]() |
Vonar að niðurstaðan verði önnur |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 01:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Útvarpið kom út úr skápnum
31.5.2014 | 14:46
Það var mikil gleði heima hjá Veru Viggósdóttur þegar útvarpið kom út úr skápnum. Já, ég er svo sannarlega hýr sagði þessi yndislega kona, sem hefur barist fyrir því að fá Guðna Má aftur í útvarpið. Ég er meira að segja að hugsa um að bjóða honum hingað vestur til Tálknadýrafjarðar sagði hún létt í lund. Ég er byrjuð að baka kleinur og svo verða flatkökur með rauðmaga og rúgbrauð með reyktum silungi, fyrir utan súra selshreifa og smávegis afgang af hrútspungum.
Ekkert er of gott fyrir Guðna Má sagði hún og hækkaði í tækinu svo rödd Gylfa Ægissonar barst um allt plássið þar sem hann söng hið gullfallega lag: Sjúddirarirei.
![]() |
Næturvaktin aftur í loftið |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eitt sinn Hallur ávallt Hallur!
30.5.2014 | 23:56
Hallur vinur minn Magnússon er ákaflega góður drengur. Hann hefur sínar sterku skoðanir eins og hann á kyn til og er fylginn sér. Þeir sem þekkja Hall bara úr blaðagreinum mynda sér oft rangar skoðanir um hann. Mér hefur hann reynst einstakur vinur ekki síst þegar eitthvað hefur bjátað á.
Annars er það nú bara svo að hið ágæta fólk, sem er frá Hallkelsstaðahlíð það er ekkert sérstaklega gefið fyrir að sýna einhvern eymingjaskap.
Þetta minnir mig svolítið á það þegar Haukur Helgason fyrrverandi skólastjóri hringdi í mig í fyrra vegna blaðagreinar. Hann sagði orðrétt. Það er auðvitað ekki þannig að ég sé þér sammála, en ég dáist að þessari vestfirsku þrjósku, sem hefur fylgt þér alla tíð. Við félagarnir gætum því sungið saman: Við gefumst aldrei upp þó móti blási.
![]() |
Hallur hættir á Útvarpi Sögu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt 31.5.2014 kl. 00:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)