Færsluflokkur: Lífstíll
Og þessu efni er neitt ofan í þig
29.5.2014 | 15:01
Viltu lesa þetta hægt yfir og segja mér hvort þig langar í þetta efni. Að vísu skiptir svarið ekki miklu, því mjög líklega ertu búinn að fá það í líkamann í dag. Án þess að þig hafi grunað neitt er því laumað í ákveðna matvöru. Ekki er ósennilegt að þú efist um að þetta sé rétt, en því miður er ekki svo. Menn hefur um áraraðir grunað að eitthvað svona væri á ferðinni, en ekki fundið hvar.
xxxx will frequently cause flushing, which may include burning, sweating, tingling, redness or chills. These can last as long as 4 hours after taking the supplement, but this is a harmless condition. Other common side effects of taking xxxx include upset stomach, nausea, vomiting, diarrhea, heartburn or dizziness. In severe cases, taking xxxx can result in persistent headache, irregular heartbeat, swelling of the arms or legs, joint pain, or blurred vision. In rare cases patients may also experience intense abdominal pain, incessant nausea or vomiting, bloody or black stools, yellowing of the eyes and muscle or joint pain. Allergic reactions to xxxx can result in swelling of the lips, tongue, throat or face, itching or hives.
Þessi texti er tekinn beint af upplýsingasíðu fyrir lækna um allan heim
Sagði einhver harmless?
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 15:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Við heyrum svo oft um hryðjuverkamenn sem eru Múslimar
29.5.2014 | 08:42
Sveinbjörg kann að hlusta á fólkið. Það er nefnilega svo að ótrúlega margir vilja enga byggingu á þessum stað það sem maður kemur eiginlega blíðlega inn í Borgina með grænar grundir til hægri. Hvergi í Reykjavík blasir eins vel við ökumönnum að það séu líka til yndisleg græn svæði.
Eflaust spilar inn í að undanfarin ár höfum við heyrt gífurlega mikið um öfgamenn, sem eru Múhameðstrúar og nú síðast í Nígeríu. Nú og svo heyrðum við ekki svo lítið um Al Kaeda samtökin.
Þeir sem vilja dæma okkur ofstækismenn vegna þess að við erum í vafa um Moskuna, þeir hafa hátt og skilja ekki slíkan öfgakenndan hugsunarhátt. svo taka þeir upp tólið og spyrja ráðamenn Borgarinnar hvort það sé forsvaranlegt að vera að setja upp heimili fyrir einhverfa þarna í götunni.
![]() |
Framsókn með mann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:46 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Nú var ég heppinn!
26.5.2014 | 19:55
Það hefði verið rosaleg spæling að koma með sjúkrabíl á Landspítalann í Fossvogi og vera rekinn til baka. Til allrar Guðs lukku heimsótti ég þá aðfaranótt laugardags. Nú segjast þeir hamast við að útskrifa fólk svo Mósi verði þeim ekki að fjörtjóni.
Auðvitað hefur maður alltaf gert sér ljóst að Landspítalinn er hættulegasti staður landsins miðað við dánartíðni. Í dánarfregnum er nánast alltaf tekið fram að viðkomandi hafi andast á Landspítalanum. Menn geta því þakkað sínum sæla fyrir að vera nú útskrifaðir með hraði áður en Mósi brokkar inn á stofuna til þeirra.
![]() |
MÓSA-smit greinist á Landspítala |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Er makinn grimmur við þig?
26.5.2014 | 08:13
Nú eru vísindamenn vissir um að ADHD erfist í allt að 90% tilvika. Það er stjórnstöð heilans sem virkar ekki rétt og í stað þess að framheilinn virki almennilega þá getur mandlan tekið við. Ekki er þá von á góðu, því hún stýrir þeirri gamalkunni tilfinningu að nú eigir þú aðeins tvo möguleika: Flýja eða berjast. Þessi tilfinning sem hefur fylgt mannkyninu frá örófi alda magnast upp.
Þar eð þetta er í heilanum sjálfum þá eldist þetta alls ekki af fólki, en það verður meiri leikarar með árunum. Menn reyna að fela þetta eins og hægt er, en lendi það í aðstöðu þar sem tveir berjast þá er það stríð upp á líf og dauða.
Hjónarifrildi þar sem annað er með ADHD en hitt ekki verða aldrei réttlát, því sá sem er með ADHD notar öll vopn sem til eru. Þekktast er kannski setningin: Þú gerðir þetta alltaf, þótt það hafi bara gerst einu sinni.
Börnin lemja stundum, bíta jafnvel en ef orustan sýnist töpuð þá er farið út í horn þar sem veggurinn hlífir við árásum aftan frá. Ennþá einn arfur frá frummanninum.
Ég heyrði fræg íslensk hjón lýsa sambandi sínu nýverið. Það er enginn vafi á því að hún er með ADHD
![]() |
Mikil þörf fyrir greiningu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Tímamót - héðan í frá kennum við launalaust!
21.5.2014 | 16:50
Þetta eru merk tímamót sagði Trausti smíðakennari við mig áðan. Hann sagði að það væri löngu tímabært að grunnskólakennarar afsöluðu sér launum fyrir sína vinnu. Ja, ef vinnu skyldi kalla sagði Trausti. Þetta er skemmtun frá morgni til kvölds. Og hugsaðu þér sagði hann nú fá þeir sem eldri eru að kenna meira.
Í mörg ár hefur það tíðkast að rífa þá út úr kennslu í miðjum tíma og segja: Nú getur þú ekki meira í dag vesalings gamla hró. Nú fá þeir að kenna jafnmikið og hinir (eða fá enga launahækkun)- Þetta gamla lið á nóg af peningum, fékk húsin sín ókeypis og svona. Já, og aldrei fékk ég neitt úr þessum launapotti sagði Trausti svo það er fínt að losna við hann.
Þarna varð mér ljóst það sem mig hafði lengi grunað - Trausti hefur misst glóruna.
![]() |
Nýr kjarasamningur markar tímamót |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 17:16 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hver reið hverjum og sprenging sprakk í námunni
18.5.2014 | 08:55
Ekki er þetta í fyrsta skipti sem menn nota svona fyrirsögn. Jennifer reið Jimmy. Ég verð nú að viðurkenna að ég þekki þetta fólk ekki neitt og skiptir mig ekki öllu mál hvort einhver kona sé reið eða ekki.
Hins vegar skulum við vona að blaðamanni sé vel ljós tvíræðni fyrirsagnarinnar. Það er auðvitað hið besta mál að taka þessu létt, en þetta er ekki fyrsta helgin þar sem ég undrast færni blaðamanna hér á þessum vef. Í sorglegri frétt hér núna er t.d. sagt frá sprengingu sem sprakk. En það var ekki einu sinni sprengja sem sprakk heldur varð sprenging í námunni. Hvar er eiginlega metnaður Moggans?

![]() |
Jennifer Lawrence reið Jimmy Fallon |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvatvísi!
17.5.2014 | 11:47
Ég hef í nokkra daga kynnt mér allt sem ég get um hvatvísi. Þessi mynd fellur svo einstaklega vel inn í það efni að ég vildi að ég mætti hafa hana sem forsíðumynd á greininni sem ég er að skrifa.
Þeir sem eru hvatvísir eru oft yndislega skemmtilegir, því þeir taka upp á einhverju, sem þeim dettur allt í einu í hug. Þeir leiða hugann alls ekki að því hvað getur skeð í framhaldinu og hvort einhver misskilji hlutina. Hér einu sinni var sagt að þetta ágæta fólk framkvæmdi áður en það hugsaði.
Það sem meira er mér finnst alltaf fólk frá ákveðnu landsvæði sýna hvatvísi og ég þekki það úr á samkomum. Veit ekki hvort nokkur þorir að giska hvaðan það fólk er.
![]() |
Þingmenn féllust í faðma |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Nýr texti til heiðurs Eyjamönnum
15.5.2014 | 21:33
Ég veit þú kemur í kvöld til mín
![]() |
ÍBV Íslandsmeistari í fyrsta sinn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hvað gerum við með Eyvindarána
14.5.2014 | 16:45
Svona er þetta fyrir austan
![]() |
Börn stökkva fram af Gullinbrú |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Það er þjónn í baðkarinu!
13.5.2014 | 09:46
Það er sagt að list blaðamannsins sé fólgin í fyrirsögninni. Ef fyrirsögnin er góð þá vekur hún næga athygli til að fólk fari að lesa. Ég verð að viðurkenna að ég náði því ekki alveg hvar þessi sæti þjónn kæmi inn í baðkerið.
Af tvennu góðu hlýtur það að vera betra að hafa baðkerið ekki of stórt, því þá mun sæti þjónninn óhjákvæmilega vera nær manni. Þegar maður les svo greinina koma í ljós þau sorglegu tíðindi að það er enginn þjónn í baðkerinu hvað þá heldur einhver íturvaxinn, sólbrúnn sólstrandargæi.
Vonbrigði lífsins eiga sér engin takmörk!
þjónn
![]() |
Þjónninn of sætur, baðkarið of stórt |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)