Færsluflokkur: Lífstíll
Betra er á fjöllum konum og "köllum."
13.4.2014 | 11:14
Þar er meðal annars að finna þessar línur við lagið Waltzing Mathilda.
Vinnirðu á skrifstofu
daginn út og daginn inn
doðranta fyllandi stóra og smá.
Hundleiður orðin
á öllu þessu auminginn,
æddu til fjalla og þá muntu sjá:
Að betra er á fjöllum
konum og köllum
koma þau öllum að nýju í lag.
Vistin á öræfum
eykur fjör og styrkir þrótt.
Öræfin munum við gista í nótt.
![]() |
Vilborg komin í grunnbúðir Everest |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Gæti endað með skelfingu!
12.4.2014 | 11:33
Það er aldrei að vita hversu langt þessir áhangendur Liverpool geta gengið. Þannig vildi ég ekki vera í sporum mágsins, ef langt er liðið á leik og hann ekki sofnaður. Upp í hugann koma myndir af konu sveiflandi trékjullu eða í versta falli slaghamri. Svo er ég aðdáandi Agöthu Christie svo ég sé fyrir mér sveflyfi, sem er laumað í bjórinn rétt fyrir leik.
Sennilega öruggast fyrir máginn að flytja aftur til Bretlands með hraði.
![]() |
Tryggir mágur Liverpool titilinn? |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:35 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Eru einhver hótel í Kópavogi?
9.4.2014 | 19:49
En þegar ég fór að hugsa betur þá mundi ég hreinlega ekki eftir neinu hóteli í Kópavogi og þótt ég sé nú enginn sérfræðingur þá bendir þetta allavega til að markaðssetning Kópavogs, sem spennandi viðkomustaðar virðist vera léleg.
![]() |
Ætla ekki að bjóða Gísla Marteini í helgarferð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
63% þjóðarinnar í fýlu!
8.4.2014 | 13:32
Eru ekki Íslendingar meira eða minna í fýlu út í allt og alla. Það má því þakka fyrir að það séu aðeins 63%, sem segjast óánægð með Sigmund Davíð. Hann nennir ekkert að hlusta á þennan vælugang og er ófeiminn að segja mönnum það hreint út að þeir séu bara að reyna að skapa vandræði.
Mér fyndist skemmtilegast ef hann lýsti því bara yfir að þetta óánægða lið geti bara étið það sem úti frýs og fengi enga lækkun á höfuðstól lána.
![]() |
63% óánægð með Sigmund Davíð |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Vallarstarfsmaður kemur illa undan vetri!
7.4.2014 | 21:57
Þetta lítur illa út sagði Kristinn V. Jóhannsson, vallarstarfsmaður á Laugardalsvelli sem kemur illa undan vetri.
Það voru tekin sýni og þau send í greiningu. Þau líta ekki vel út og það er eins og allt sé dautt, segir Kristinn.
Ég er ekki hissa á því þótt maðurinn sé sjokkeraður. Ekki vildi ég lenda í svona uppákomu það veit sá sem allt veit. Ég mundi allavega biðja um áfallahjálp.
![]() |
Gott vor er grassins eina von |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 22:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Er ekki komið nóg!
3.4.2014 | 18:52
Ég harma þetta slys fyrir norðan. Vissulega hlýtur það að virka spennandi að vera fluttur upp á fjallatoppa og fá að renna sér niður. Spurningin er þó hvort skipuleggjendur og ferðalangar gera sér nokkra grein fyrir þeirri áhættu, sem þeir taka. Allir vita að skyggni getur verið afleitt til fjalla svo maður greinir tæpast hæðir og hóla og nýleg slys á snjósleðum sanna að menn geta allt í einu lent í því að falla marga metra af því þeir sáu einfaldlega ekki hættuna framundan. Síðan vita auðvitað allir að ferð á skíðum og snjósleðum utan alfaraleiða geta komið af stað snjóflóðum.
Hvar eru takmörkin?
![]() |
Skíðakonan komin í þyrlu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:07 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Heilaþvottur hjá Landsvirkjun
2.4.2014 | 17:51
Svo spyr maður sjálfan sig. Hafa þau þá lofað að vera góð og ekki vera með neitt vesen á móti ríkisstjórninni. Svo er auðvitað mögulegt að Bjarni eigi sér þann draum að hann geti heilaþvegið þetta vinstri lið og gert það að öfgafullum virkjunarsinnum, sem berjist fyrir fleiri virkjunum í Þjórsá . Sennilega er þetta þó síðbúið aprílgabb.
![]() |
Jónas Þór nýr stjórnarformaður |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 17:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Sullaveiki, salmonella og hringormar!
2.4.2014 | 07:59
Það er rétt að minna á í þessu sambandi að það er bráðnauðsynlegt að sjóða og steikja vel bæði svína- og kjúklingakjöt. Það er hins vegar orðið lítið um að fólk borði kjöt af sel, en ef ég man rétt þá er hann einn helsti hýsill fyrir hringorminn, sem aftur fer svo yfir í fisk.
Svo verð ég að viðurkenna að ég er skíthræddur um að þessi hundaskítur um allan bæ verði til þess að aftur taki sig upp bandormur og þar með sullaveikin sem lék marga grátt hér áður fyrr. Því miður eru ekki nálægt því allir hundar skráðir og því fá þeir ekki allir ormalyf.
Hér skal svo bent á stórmerkilega grein úr læknablaðinu
![]() |
Hringormur veldur bráðaofnæmi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:08 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Góðmennska Vodafone og Símans er takmarkalaus
1.4.2014 | 20:58
Þeir bjóða nú upp á stórkostlega nýjung þ.e.a.s. hindrunarlausan aðgang að internetinu. Eins og allir vita þá hafa hindranir verið í hverju horni og fólk hefur nánast hvergi náð netsambandi á sínar nýju græjur.
Nú geta menn glaðst yfir því að geta jafnvel náð sambandi við netið þó þeir séu ekki fastir við snúru innanhúss. Ég hafði heyrt eitthvað rætt um þráðlaust samband, en trúi því varla að þessi fyrirtæki standi við þessi stóru orð. Vonandi er þetta ekki aprílgabb.
![]() |
Nýjar leiðir hækka verð gagnamagns |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Banna almenningi að kaupa lestrarbækur
1.4.2014 | 09:07
Sú frétt berst nú eins og eldur í sinu að grunnskólakennarar hafi farið þess á leit við bókabúðir að enginn geti fengið það keyptar lestrarbækur nema sanna að hann sé með kennararréttindi. Sagt er að þeir telji að fikt ólærðra við lestrarkennslu geti haft óbætanleg áhrif á barnið og þetta sé sennilega orsök þess hversu margir strákar enda grunnskólann illa læsir.
Svo var líka að heyrast að píparar vilji hindra að leki, stíflur og ryð myndist í rörurm landsmanna en talið er að allt slíkt stafi frá ófaglærðum, sem hafi m.a. leigt sér snittvélar í Byko. Það er alveg ómetanlegt þegar fagfólk hefur þannig vit fyrir okkur vitleysingunum og fórnar eigin hagsmunum í okkar þágu.
![]() |
Bannað að leigja almenningi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 09:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)