Færsluflokkur: Lífstíll
Alltaf fjör í Latabæ
30.4.2014 | 20:17
Skelfing er ég feginn að Magnús íþróttaálfur hafi ekki sest í helgan stein. Ég er líka rosalega feginn að Smartlandið sé á tánum og láti ekkert svona fara framhjá sér. - Auðvitað á íþróttaálfurinn stað í hjörtum okkar allra svo okkur þykir gífurlega vænt um það að hann sé ekki að rolast um einmana og yfirgefinn. Vona bara að þessi nýja álfadís sé ekki stirð eins og hún Solla og ekki heldur sælgætisgrís. Slíkt væru dapurleg örlög fyrir íþróttaálfinn.
![]() |
Magnús Scheving kominn á fast |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:34 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Kemur hermannaflugan með hermannaveikina?
30.4.2014 | 08:33
Hvað er eiginlega í gangi. Á meðan menn hatast við það eins og heitan eldinn, þegar pöddur eru að nema land af eigin frumkvæði eins og geitungar, þá eru menn að leika sér á því að taka sénsa með að flytja önnur kvikindi til landsins. Hvaða erindi á þessi hermannafluga hingað til okkar? - Að vísu skulum við vona að hún flytji ekki með sér neina óværu aðra en sjálfa sig. Skyldi einhver álíta að sé henni sleppt á Vestfjörðum þá haldi hún sig þar.
Best að bæta því við að mér er meinilla við að menn séu að koma upp býflugnabúum hér og þar og leyfa þessu sem ég hef alltaf kallað randaflugur að bætast í hóp þeirra kvikinda sem fyrir eru.
![]() |
Lirfur látnar éta lífræna úrganginn |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Reið fjárhagnum að fullu
30.4.2014 | 08:26
Ég vil nú reyndar leyfa mér í upphafi að efast stórlega um að Harry sé einhver ævintýraprins. Ætli hann sé ekki miklu frekar ofdekraður Breti. Annars er það auðvitað alveg út í hött fyrir prins að vera að þvælast með konu, sem er þurftafrek nú þegar. Hvað gæti þá orðið þegar stúlkan er orðin að prinsessu og finnur það á eigin skrokki, ef ein lítil baun er undir sautján dýnum.
Nei, ég tel þessa ákvörðun Harrys hárrétta ekki síst fyrir stúlkuna. Svo eru nú ekki svo mikil fjárframlögin til konungsfjölskyldunnar að þau þurfi á einhverjum afætum að halda.
![]() |
Ævintýraprinsinn aftur á lausu |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:28 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Eiga þessir timburhjallar rétt á sér!
28.4.2014 | 12:02
Örstutt er á milli þessara skúra og að sjálfsögðu hvergi neina eldveggi að finna. Vonandi eru allir öruggir á mínum gamla, góða vinnustað og það er hreinlega skylda þeirra hjá Reykjavíkurborg að skoða alla þá timburhjalla, sem skellt hefur verið upp við skóla Borgarinnar. Þarna sýnir sig í raun hversu ofboðslega fljótt þeir fuðra upp.
![]() |
Eldsvoði í Rimaskóla |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 12:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hefði átt að segja eina og hálfa milljón á mánuði!
25.4.2014 | 08:02
![]() |
Þetta hleypir illu blóði í mitt fólk |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:05 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þá verður sumarið gott!
24.4.2014 | 11:28
Það má enginn misskilja þessa fyrirsögn. Með henni er átt við að þá verði sumarið vonandi mjög ánægjulegt fyrir Guðna sjálfan. Tuddaskapur og hanaslagur einkennir svo íslensk stjórnmál að Guðni hlýtur eiginlega að vera búinn að fá miklu meira en nóg.
Annars er það auðvitað þungur róður að glíma við alla þá sem eru í borgarstjórn og þykjast aldrei nota bíla. Merkilegt hvernig er hægt að snúa öllu á haus og þrengja og þrengja götur eins og Borgartún þangað til menn flýja á næstu götu og þá er hún þrengd líka eins og nú mun standa til með Sæbrautina.
Gleðilegt sumar Guðni.
![]() |
Guðni gefur ekki kost á sér |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Í lagi með Gísla en ekki Þóru
18.4.2014 | 11:46
![]() |
Þóra Arnórs á leið í Yale |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Verð að klára allt vínið fyrir laugardaginn.
16.4.2014 | 19:11
Ætli maður klári ekki bara þessar fjórar hvítvínsflöskur með laxinum í kvöld og vakni snemma til að rétta sig aðeins af. Þrjár rauðvín með hangiketinu annað kvöld og snögg ferð í bæinn eftir meiru á laugardaginn. Skál fyrir Heiðrúnu.
![]() |
Löng biðröð eftir víni |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Ekkert sagt af viti á fundi eldri borgara
15.4.2014 | 07:52
Já, það var vissulega fundur hér í félaginu sagði Tóta og gamla fólkið kom með allskyns tillögur. Ég sagði því hins vegar að hér mætti ekki samþykkja neina tillögu, það væri eingöngu leyft að vísa þeim til stjórnar annars gæti allt farið í tóma vitleysu. Hugsið ykkur, sagði Tóta, hér er auðvitað algjört lýðræði, með svona öryggisventli.
Nú svo kom fram tillaga um vantraust á okkur. - Já, fáránlegt ekki satt, vantraust á okkur, sagði Tóta og eldroðnaði af vandlætingu. Auðvitað neitaði fundarstjóri að taka fyrir svona heimskulega tillögu. Ég sé ekki að neitt sé að hjá okkur, sagði Tóta og glotti við tönn.
![]() |
Þetta var stormur í vatnsglasi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Víða farið illa með eldri borgara
14.4.2014 | 08:01
Það þekkja það allir að það hefur verið okrað svínslega á eldri borgurum. Þannig hafa margir þeirra nánast verið plataðir til að selja stóreignir til þess eins að setja söluverðið í litla íbúð, sem hefur verið seld á okurverði vegna þess að hún væri nærri einhverri þjónustu.
Svo fallast mönnum hendur er þeir heyra leiguverð íbúða hjá DAS. Nú berast af því fréttir frá Hornafirði og Kópavogi að þar sé pottur brotinn og undanfarna daga hafa fjölmargir íbúar hjá Eir verið að skrifa undir eitthvað sem varla verður kallað annað en nauðasamningur. Því miður eru allar líkur á að þessi mál séu miklu víðar í algjöru rugli.
![]() |
Harmi slegnir íbúar |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 08:04 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)