Færsluflokkur: Lífstíll

Að vinna hug og hjörtu!

Sigrar eru margskonar. Þótt íshokkístelpurnar okkar ynnu ekki keppnina, sem fram fór í Laugardalnum þá var stórkostlegt að hafa lið frá 5 þjóðum í húsinu. Og þarna var samankomin æska þessara landa með tilheyrandi glaðværð og skemmtilegri framkomu. Einhver stærsti sigur, sem hægt er að vinna er að vera sjálfum sér og landi sínu til sóma. Þannig var það með alla þessa hópa og aðdáunarvert hvernig Akureyringar hafa rifið þetta upp með glæsilegri aðstoð frá ungri snót sem hingað flutti frá Kanada.

Til hamingju stelpur! 


mbl.is Sárt að komast ekki á pall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næst í Kerið Ögmundur!

Á meðan Ögmundur var ráðherra þá var gaman að hlusta á hann í fréttum. Hann er laginn að hlusta á þjóðina og standa að baki því sem fólkið vill. Ef Ögmundur hefði ekki verið ráðherra þá væri mjög stórt landsvæði á norðausturlandi í eigu Kínverja svo dæmi sé tekið.
Vissulega er mikil þörf á að laga til víða, en einn þúsundkall á hvern farmiða í og úr landi ætti að gefa ótrúlega mikið í slíkan sjóð. Skora á Ögmund að líta við hjá Óskari Magnússyni í Kerinu næst.
mbl.is Gjaldtöku við Geysi hætt í hádeginu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Súrmjólk í hádeginu cheerios á kvöldin

Miðað við þessa frétt hér þá hefur mataræði landans breyst mjög til hins verra á síðari árum. Það muna allir eftir ljóðinu um  súrmjólk sem var á borðum í hádeginu ásamt cheeriosi á kvöldin.

Samkvæmt þessari frétt hér hefur allt farið mjög á verri veg og vissar fjölskyldur éta hamborgara að kveldi og klára afganginn að morgni. Eins gott að til eru menn, sem fylgjast með og berjast á móti svona háttalagi. Nú fæ ég loks skilið af hverju þjóðin hefur breyst eins og brýrnar frá því að vera einbreið yfir í tvíbreiða.


mbl.is Hélt dagbók um nemanda
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bætir ekkert að hella í niðurföllin?

Sennilega kunna allir það ráð að hella vatni í niðurföll, sem eru orðin þurr í þvottahúsum og á baði svo minni líkur séu á að svona pest komist inn í húsin. Lagar að vísu ekki upptök fýlunnar en getur hjálpað um stundarsakir. 

Verst er að hraðinn við að byggja mörg þessi hús var svo mikill að maður fyllist ljótum grun um að sums staðar hafi kannski ekki verið gengið alveg rétt frá niðurföllunum. 


mbl.is Stæk bensínlykt á heimilum fólks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar verkfallsvopnið heggur til baka.

Staða framhaldsskólakennara er satt að segja mun erfiðari en þá sjálfa óraði fyrir. Í hnotskurn er staða þeirra þessi: Æðsti yfirmaður menntamála er þeirrar skoðunar að hann hafi í raun ekkert með þá að gera í fjögur ár heldur  bara þrjú. Á mannamáli þýðir þetta í raun að einhver hluti kennaranna sé að kenna eitthvað sem vel megi sleppa eða hægt sé að dreifa einu kennsluári yfir á hin þrjú.

Ég er dauðhræddur um að forysta framhaldsskólakennara hafi hreint ekki áttað sig á því hversu hrikaleg staða þeirra er. Það væri hreinlega ægileg niðurstaða, ef þeir enduðu með að semja um að það yrði 25% minni vinna í boði í framtíðinni. 


mbl.is „Það er þungt í okkur hljóðið“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gunnar Braga beint í eftirlitið!

Nú bar vel í veiði. Gunnar Bragi er staddur í Úkraínu með hermannaklippingu. Þess vegna liggur algjörlega ljóst fyrir hvaða Íslendingur gæti farið beint í þessa eftirlitssveit.  Í viðtali um daginn sagði sonur hans og sumir héldu að Gunnar Bragi væri kjáni, en ég efa ekki að með hetjulegri framgöngu í Úkraínu yrði hann heimsþekktur, þegar hann hindraði innrás Rússa.

Nú ekki yrði vandamál með ráðuneytið hérna heima. Tvær ungar stúlkur voru ráðnar sem aðstoðarmenn hans og víðtæk reynsla þeirra af utanríkismálum mun verða til þess að ráðuneytið mun blómstra í fjarveru Gunnars Braga.


mbl.is Íslenskir eftirlitsmenn til Úkraínu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Íslensk blöð eiga mikinn heiður skilinn!

Fyrir nokkrum árum varð þvílík breyting í íslenskri blaðamennsku að því verður ekki með orðum lýst. Ég man þegar Fréttatíminn hóf göngu sína og þar var rætt við venjulegt fólk. Fyrst og síðast var rætt við fólk sem hafði barist við allskyns erfiðleika. Síðan liðu mánuðir og allt í einu breyttist gamalgróin lesbók Morgunblaðsins og varð að Sunnudagsblaði, þar sem sama lögmál ræður ríkjum.

Þessi breyting er ólýsanlega mikilvæg. Innst inni langar svo marga að segja sögu sína, ef hún kynni að hjálpa öðrum sem glíma við það sama. Það ber að þakka þann vettvang, sem nú hefur opnast.

Gangi þér vel Ingólfur! 


mbl.is Glímir við kvíðaröskun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þá skal ek nú, segir hún, muna þér kinnhestinn

Varla vefst það fyrir neinum hvaðan fyrirsögnin er fengin. Hún kom upp í hugann, því ónefndur prófessor í hagfræði hefur verið óþreytandi við að rita um landbúnaðarmál og t.d. nýverið um okurverð á rjóma. Nú er lag fyrir bændur að spyrjast nánar fyrir um kjör þeirra, sem starfa við háskóla. Að vísu eru það kennarar þar sem voru að greiða atkvæði um hugsanlega verkfallsboðun.

Bændur gætu samt byrjað á prófessorum og spurt ósköp blíðlega hver sé lægsta kennsluskylda þeirra.  Kannski mætti auka kennsluskyldu þeirra og bæta kjör kennaranna.

 

hrutur
mbl.is Háskólakennarar samþykkja verkfall
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Grasblátt!

Það verður skemmtilegt að sjá þyrlur gæslunnar í nýjum lit. Ég er að velta því fyrir mér hvaða litir hafi komið til greina, en hér segir í fyrirsögn að þær verði appelsínurauðar. Miðað við þetta þá heita litirnir öðrum nöfnum en ég vandist í æsku. Þannig vandist ég því að appelsínur væru gular en ekki rauðar. Gras var á þessum árum talið grænt og kolin, sem menn þekkja ekki lengur voru semsagt kolsvört. Tímarnir breytast og litirnir með.appelsinurautt
mbl.is Þyrlurnar verða appelsínurauðar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bara veður eins og í gamla daga

Þetta óveður í Dölunum minnir mig á það að eitt sinn var ég á leið suður ásamt húsverði Laugaskóla. Hann var á undan og  á svokölluðu Glerárskógaklifi stoppuðum við enda var svona tveggja metra skyggni. Skyndilega tekur hann sig til og bakkar á mig. Ég hrópa á hann hvað hann sé að gera, en þá bendir hann mér á að við séum í örlitlum halla og ég hafi runnið á sinn bíl. Í svona brjáluðu veðri missir maður tilfinninguna fyrir umhverfinu. Það er gott til þess að vita að húsin á Laugum hafa staðið af sér mörg slík veður og vel fer um unglingana, sem þar eru í skólabúðum.
mbl.is Framrúða fauk úr rútu á Laugum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband