Vonandi gáfulegra en djúpsprengjan

Það fer svolítið um mann þessa dagana. Menn sem leyfa það að djúpsprengjur séu notaðar til að tékka á því hvort síldin sé heyrnarlaus, þeir hljóta að vera öðruvísi en fólk er flest. Ekki veit ég t.d. betur en að maður  sem veiddi lax með þessum hætti í Brynjudalsá, honum hafi verið stungið inn samstundis. Það væri nú þokkalegt, ef ríkislögreglustjóra væri stungið inn, enda mun hann í öryggisskyni hafa gefið út yfirlýsingu um að hann eigi ekki hugmyndina.

Nú kemur fréttin um lausn skuldavandans eins og hver önnur sprengja inn á borð okkar. Vonandi springur þessi lausn ekki í andlitið á höfundum hennar.  Hins vegar skal ég viðurkenna að ég skil ekki enn þennan hrærigraut, sem er borinn á borð, en vonandi smakkast hann vel.


mbl.is Nærri 130 milljarða lækkun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband