Kannski 2,9%
16.3.2014 | 21:55
Þá er nú ekki víst að framhaldsskólanemar leggist á koddann alveg strax. Sennilega þætti þeim mörgum í lagi að fá svona vikufrí, en eftir það hellist yfir menn þetta undarlega tóm, þegar maður hefur ekki félaga sína á næstu grösum og dagarnir verða langir og leiðinlegir. Í Hávamálum er sagt að maður sé manns gaman og það á svo sannarlega við í skólanum, þótt krakkarnir séu stundum að fjasa um leiðinlega kennara, fúla dönsku og annað slíkt.
Þegar fólk lítur til baka þá voru einmitt árin í framhaldsskólanum bestu ár ævinnar.
Verkfall hefst á morgun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Þegar goshvernum var lokað!
15.3.2014 | 13:18
Heimilt að loka Geysissvæðinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 13:20 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Svefngenglar með síma!
14.3.2014 | 18:07
Hvar sem maður kemur ræða kennarar og aðrir uppalendur um allt þetta snjalldót og vandann, sem það skapar. Þegar viðkomandi uppalandi hefur kíkt í símann sinn þá segir hann manni að þessi vandi sé svo stórkostlegur hjá börnum og unglingum að eitthvað þurfi að gera strax. Að svo mæltu kíkir uppalandinn á símann sinn smástund.
Staðreyndin er sú eins og allir vita að fólk er oft ráfandi eins og svefngenglar starandi á upplýstan skjá algjörlega út úr heiminum. Það er stórkostlegt að einhver hafi nú riðið á vaðið og hreinlega bannað þetta dót í keppnisferðum. Mikið væri gott ef skólar gripu tækfærið og segðu: Hingað og ekki lengra.
Banna alla síma í keppnisferðum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 18:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Er ekki frjálst að labba um eigið land?
14.3.2014 | 17:52
Kvótakóngar íslenskrar ferðaþjónustu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þingvellir fyrir ALVÖRU veiðimenn
13.3.2014 | 16:52
Flestir sem eru að byrja veiðar láta sér nægja flotholt og maðk. Þeir eru einnig ófáir pabbarnir, sem hafa tekið börnin sín með til Þingvalla og leyft þeim að hafa sína stöng í rólegheitum með flotholti á meðan þeir hafa notað sínar aðferðir.
Það er merkilegt að þetta geti ekki verið óbreytt, en nú mun ákveðið að enginn megi veiða í Þingvallavatni í maímánuði nema á flugu. Til þess að fá fólk til að gleypa við þessu var ákveðið að nú megi þessir ALVÖRU veiðimenn byrja þann 20. apríl.
Enn spyr ég: Fyrir hverja eru Þingvellir?
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 16:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Banna böll í framhaldsskólum
12.3.2014 | 20:01
Það eru margir stjórnendur framhaldsskóla orðnir hundleiðir á böllum. Einn sagði reyndar að það væri langbest að vera algjörlega laus við þennan ófögnuð bæði innan skóla og utan. Hann sagði að þessu fylgdi ótrúleg ónæði, ölvun og vesen. Annar sagði að um leið og talað væri um böll þá myndaðist einhver óskilgreindur þrýstingur og væri hreinlega ekki kennsluhæft þann daginn.
Varðstjóri komst þannig að orði að fólk væri slegið blindu ef það talaði um skólaböll og héldi að slíkt fyrirbæri væri eitthvað frábrugðið venjulegum böllum. Eina ráðið virðist því að banna böll í framhaldsskólum.
Allir eru sótölvaðir á böllum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Sofðu unga ástin mín !
10.3.2014 | 15:17
Spá 40-50 metrum á sekúndu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Leikhús lögreglunnar!
8.3.2014 | 19:59
Vegfarandi: Ég er hérna á veginum við Hveragerði og það er hlið fyrir veginum
Lögregla: Ertu ekki að meina yfir veginn?"
Vegfarandi: Hvaða tittlingaskítur er þetta?"
Lögregla: Er þetta hlið ekki frekar fyrir þér en fyrir veginum. Hann ætlar mér vitanlega ekki að fara neitt.
Vegfarandi: Ég er búinn að kaupa miða í óperuna og nú get ég ekki notað þá.
Lögregla: Ertu að meina óperuna Ragnheiði í Eldborgarsalnum - tvo miða?.
Vegfarandi: Já, og konan mín grætur hér við hliðina á mér
Lögregla: Já, það gráta nú víst margir á þessari sýningu. Manstu nokkuð númer hvað sætin ykkar eru?
Vegfarandi: Já á 6. bekk númer 26 og 27
Lögregla: Heyrðu, ég má því miður ekki vera að ræða við þig lengur, en ég er einmitt að loka hér í Þrengslunum líka og þarf að drífa mig í bæinn. Þú ferð bara heim og horfir á góða mynd."
Alltaf sama ruglið í löggunum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 20:06 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Fátæk þjóð í vanda!
6.3.2014 | 19:26
Nú er öldin önnur. Þjóðin er fátæk og í vanda og sárt til þess að hugsa hversu margir sitja heima og treysta sér ekki til að kaupa miða á ódýra tónleika eins og hjá Timberlake. En svona er þetta nú einu sinni. Það er þó gott að þjóðin sýnir nú aðhald og skynsemi í peningamálum.
Seldist upp á Justin á 12 mínútum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:30 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Vinir vina sinna!
6.3.2014 | 19:15
Það er ómetanlegt að eiga góða vini. Það er skemmtileg tilviljun að bæði í gær og dag birtist frétt af konum, sem fara úr landi til að styðja aðra. Það hlýtur að vera merkileg lífsreynsla fyrir mann, sem hefur setið lengi í fangelsi að fá heimsókn frá mæðgum, sem hafa skrifast á við hann í nokkur ár.
Sama á auðvitað við um Pistorius, sem nú fær endurgoldinn styrk, sem hann sýndi ungum íslenskum manni. Ég leyfi mér að óska þessum konum alls hins besta. Það er nauðsynlegt hverjum manni að eiga vini sem styðja þá í blíðu og stríðu.
Ebba styður Pistorius í réttarsal | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Hélt kannski að þessu mundi linna eitt augnablik
2.3.2014 | 11:31
Það er bráðnauðsynlegt að þessum vælugangi í garð karla verði hætt. Ef ekki þá munu allar stúlkur landsins verða skíthræddar við alla karla og halda að þeir séu sífellt að reyna að klekkja á konum.
Stundum liggur ónefndum konum svo mikið á að sanna þetta að þær fara bara sjálfar að blogga undir dulnefni til að sýna hversu hroðalegir karlar eru í raun.
Þessi fyrirsögn er dæmigerð. Þarna eru konur með dagskrá þar sem konur eru í aðalhlutverki. Hverning yrði fyrirsögnin ef karlar væru með dagskrá þar sem það væri auglýst að aðaláherslan væru á verk karla. Þeir yrðu fordæmdir í einum grænum og fyrirsögnin gæti aldrei orðið:Kvennahúmor sem beinist að körlum
Karlahúmor sem beinist að konum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 11:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Hvers eiga karlar að gjalda?
1.3.2014 | 14:38
Einu sinni enn berast af því fréttir að kona hafi rekið karl úr starfi án nokkurrar skýringar. Í þessum tilfellum reyna karlarnir að ná rétti sínum, en allir hugsa að viðkomandi hljóti að hafa gert eitthvað af sér. Þið hljótið að muna eftir svipuðum fréttum frá undanförnum árum og í öllum tilfellum voru þeir sem sendu bréfin kvenkyns. Það er algjör lágmarkskrafa að vanda vel til bréfanna og skilgreina út í æsar hver orsökin er. Við karlar getum ekki lifað við það að fólk sé að ímynda sér allskyns hluti, sem eiga ekki við rök að styðjast. Konur geta ekki skýlt sér á bak við: Af því bara.
P.s. Sé hér á bloggi Arnþórs Helgasonar að við erum innilega sammála.
Lífstíll | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Konur sem hata konur
28.2.2014 | 14:19
Það eru nefnilega ekki við karlarnir, sem erum að finna að vaxtarlagi og klæðnaði kvenna, það eru hinar konurnar, sem það gera. Þetta er einfaldlega aðferð, sem allar konur nota til að hafa sinn útvalda í friði og engin kona getur hamið þetta eðli. Feministi eða ekki feministi. Eitt sinn kona, ávallt kona.
Ég skammast mín ofan í tær | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 14:24 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Ekkert tannlæknadrasl inn í skólana!
4.2.2014 | 19:06
Margir vita að hér áður var vart finnanlegur grunnskóli í Reykjavík þar sem ekki var tannlæknastóll. Þar var athuguð tannheilsa allra krakkanna og þeir sem það kusu gátu fengið ókeypis viðgerð. Þetta var auðvitað einum of auðvelt fyrir foreldra, svo fyrir nokkrum árum var lokað fyrir þessa þjónustu.
Nú eru tannlæknar aftur að reyna að laumast bakdyramegin inn í skólana með tannbursta og aðrar stórhættulegar gjafir. Það er gott til þess að vita að þeir hjá Reykjavíkurborg eru vakandi við að vernda börin geng stórhættulegu fólki eins og tannlæknum, sem hafa fleiri andvökunætur barna á samviskunni, en nokkur önnur stétt.
Mega ekki gefa tannbursta í skólum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Lífstíll | Breytt s.d. kl. 19:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)